Afþreying

Hvað langar þig að upplifa á Austurlandi?
Auðvitað fara í gönguferðir um einstaka náttúru og litadýrð austfirskra fjarða! En það er fleira í boði!
-Fara í bátsferð, kynnast einstakri ströndinni og upplifa fugla og seli í návígi?
-Fara í skipulagðar gönguferðir eða rölta einn upp með fossastiga?
-Veiða í fjölda ám og vatna, renna fyrir silung eða lax eða fara á sjóstöng í miðnætursól?
-Njóta lífsins í Atlavík eða heimsækja Sjóminjasafnið á Eskifirði?
-Skoða steinasöfnin eða gæða þér á eðalsteik í rómantísku umhverfi?
-Skella þér í einstaka jeppaferð um víðlendur Vatnajökulsþjóðgarðs?
-Eða bruna um á vélsleða í fylgd frábærra leiðsögumanna?

Á Austurlandi finna allir afþreyingu við sitt hæfi.