Austurland lætur engan sanntrúaðan golfáhugamann synjandi frá sér fara! Í fjórðungnum eru sjö vel skipulagðir golfvellir í fallegu umhverfi er blæs hverjum kylfingi lífsþrótt og holuhögg í brjóst!
Byggðarholtsvöllur í Eskifirði er par 33(66) en ekki er vitað hvort nýi helmingurinn verði tekin í notkun í sumar en þá fer hann í par 35, lengd vallarins er um 2250 m en verður um 2500 m.Völlurinn er staðsettur innst í Eskifirði að sunnanverðu og er beygt  að Byggðarholti áður en menn koma að brúnni yfir Eskifjarðará en þar er skilti sem vísar manni á völlinn.  Helstu einkenni vallarins eru þau að hann er í miklu landslagi og miklar brekkur þannig að hann er mjög krefjandi.

Hagavöllur á Seyðisfirði er 9 holu golfvöllur, 18 holurnar, par 70, 4.786 m. á lengd og er hannaður af Hannesi Þorsteinssyni, golfvallaarkitekt.  Völlurinn er staðsettur í útjaðri Seyðisfjarðarkaupstaðar, innst í firðinum og blasir við á vinstri hönd þegar ekið er niður Fjarðarheiðina til Seyðisfjarðar.  Hagavöllur liggur undir bröttum hlíðum Bjólfsins í fallegu umhverfi þar sem Fjarðaráin, fjöllinn, fjörðurinn og bærinn blasir við kylfingnum þar sem hann stendur á teig tilbúinn í næsta högg.  Völlurinn hefur upp á að bjóða fjölbreyttar holur og eru sumar þeirra með nokkurn hæðarmun og þarf því stundum að vanda valið við rétta áhaldið áður en slegið er í átt að flötum Hagavallar. 
Í golfskála félagsins er oftast heitt á könnunni og bjóða Seyðfirðingar alla þá sem áhuga hafa á að reyna sig á brautum Hagavallar velkomna niður í fjörðinn fagra.  
Á Fljótdalshéraði er starfræktur einn golfklúbbur, Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs (GFH).  Klúbburinn var stofnaður árið 1984.  Golfvöllur klúbbsins, Ekkjufellsvöllur, er staðsettur í Fellunum norðan megin við Lagarfljótið, í um 3 km fjarlægð frá Egilsstöðum og um 1 km sunnan við Fellabæ. Völlurinn er 9 holur, um 2.400 metrar og parið 35 högg.  Völlurinn býr yfir mikilli náttúrufegurð og frábæru útsýni. Hann er staðsettur í klettalandslagi og má segja að völlurinn liggi þar á þremur hæðum í klettabeltinu, sem gerir hann einstakan og skemmtilegan að spila. Gott æfingasvæði er við Ekkjufellsvöll og er boltasjálfsali við golfskálann þar sem hægt er að fá æfingabolta. Peningar í sjálfsalann eru seldir bæði í Golfskálanum og á bensínstöð Olís í Fellabæ.

________________________________________
Frekar um golfvelli á Austurlandi:
Smelltu hér.

                                                                                                           Hagavöllur á Seyðisfirði