Kverkfjöll


    Ekki er að undra þótt Austurland bjóði ferðamanninum upp á sitt lítið af hverju í náttúrufari, enda þekur það hartnær einn fjórða eyjarinnar. Segja má að það feli í sér hvað mestar andstæður náttúru og landslags sem finnanlegar eru hérlendis. Meginhluti Austurlands er á blágrýtissvæðinu eystra, þar sem miklir fjallgarðar setja svip á landslagið, en norðvesturhlutinn er á móbergssvæðinu þar sem landslagið er ungt og óþroskað, dalir mjóir og grunnir og engin fjöll nema eldfjöllin. Þar hefur orðið mikil jarðvegseyðing á síðari tímum. Lesa meira.