Austurland er öllum upplifun - ekki síst börnum! Hér eru frábærar fjörur með alvöru óskasteinum sem má safna eða nota. Og svo má læra að fleyta kerlingar! Hvergi á landinu eru betri berjamóar! Óvíða er skemmtilegra að fara í fjallgöngu, skoða fugla, kíkja á hreindýr eða veiða silung eða lækjalontur. Nú, eða dorga á bæjarbryggjunum!  Gönguleiðir eru óteljandi. Í Skriðdalnum átti Grýla heima; kanntu sögu hennar? Drekinn býr á Vopnafirði - veistu hvers vegna? En enginn veit hvar síðasta drekaeggið er falið? Kannski í Dyrfjöllunum? Lagarfljótsormurinn er ógurlega útlítandi skrímsli - en þykir nú orðið meinlaus og felur sig fyrir flestum. Hefuðrðu komið auga á hann? Best er að reyna að koma auga á hann í Atlavík og þar í kring. Nema maður vogi sér út á fljótið á báti - en þá er nauðsynlegt að hafa trausta fylgd!
Svo má róa á kayak - og unglings ofurhetjur hafa stundað það að stökkva í Eyvindarána - með réttum og tryggun búnaði auðvitað!  Hvað jafnast á við að horfa á sjóinn gustast upp um Söxu og vaða langt upp fyrir skálmar í fjörunni við Breiðdalsvík. Eða hefurðu brugðið þér út í Papey? Hefurðu njósnað um fugla á Djúpavogi eða veitt af árabát á Eskifirði? Svo eru leiktæki í Selskóginum, leik- og íþróttavellir í flestum bæjum - og sundlaugar líka. Dvergasteinninn bíður þín í fjörunni á Seyðisfirði. Kanntu sögu hans?
Veistu að það er lítill dýragarður á Klausturseli eða að í Húsey er hægt að fara að skoða seli á hestbaki. Svo má fara í heita sturtu í Laugavalladal eða skoða stórbrotinn Skessugarðinn.

Það er af nógu að taka - engum börnum ætti að leiðast á Austurlandi.!