Skíðasvæðið í Oddsskarði Oddsskarð:

Skíðamiðstöð Austurlands er í Oddsskarði sem liggur á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Oddsskarð er talið eitt fjölbreyttasta skíðasvæði landsins og er viðurkennt til alþjóðlegs móthalds. Þar eru þrjár toglyftur og svokölluð topplyfta sem endar 840 metrum yfir sjávarmáli. Oddsskarð – eða „Austfirsku  Alparnir“ , eins og það er stundum nefnt – státar af ægufögru útsýni yfir Reyðarfjörð, Norðfjörð og Gerpissvæðið. Í Sólskinsbrekkunni er byrjendalyfta sem hentar ungum og eldri byrjendum á skíðum. Aðstaða er einnig góð fyrir brettaunnendur. Brekkurnar eru troðnar daglega og í skíðaskálanum er veitingasala og skíðaleiga. Í góðu vetrarfæri er jafnvel hægt að renna sér frá toppi fjallsins niður að sjó. Slíkrar upplifunar er ekki hægt að njóta víða! Þú þarft ekki að kosta miklu til svo að þú getir lifað hátt og notið lífsins í „Austfirsku Ölpunum“!

Nánari upplýsingar eru á www.oddsskard.is og í símsvara 848 1474.

Stafdalur

Stafdalur er austanvert í Fjarðarheiði í millum Seyðisfjarðar og Egilsstaða. Dalinn er að finna á milli svonefnds Efri-Stafs og Neðri-Stafs í heiði. Þar er 1 km. löng diskalyfta og byrjendalyfta rétt ofan við skíðaskálann sem sérlega er barnvæn. Austur-Hérað og Seyðisfjarðarkaupsstaður standa sameiginlega að rekstri svæðisins sem  er aðeins 10 mínútna akstur frá Seyðisfirði og u.þ.b.15 mín. akstur frá Egilsstöðum. Stafdalsbrekkurnar eru við allra hæfi auk þess sem svæðið er flóðlýst.

Þarna er eitt besta svig-, skíða-, og snjóbrettasvæði landsins og góð aðstaða fyrir brettafólk. Fyrir þá er frekar kjósa vélfáka en skíðin er hér að finna víðáttu og auðfarnar slóðir í allar áttir þar sem reyna má  tæki og tól. Ekki er nema klukkustundar ferð á vélsleða til Dyrfjallanna kunnu.

Nánanri upplýsingar eru á http://skis.123.is/, í símsvara 8781160 og síma 472 1551.