Austfirskar Krásir

“Austfirskar Krásir – Matur úr héraði” er gæðamerki á matvælum úr austfirsku hráefni, afurðir sem byggja á sérstöðu, handverki og hefðum á Austurlandi.
Austfirskar Krásir matreiða og framreiða hráefni af hjartans list undir kjörorðunum
Upplifun – Vitund – Sérstaða
Samtökin Austfirskar krásir – matur úr héraði voru stofnuð 26. febrúar 2009, á fjölmennum stofnfundi á Egilsstöðum. Tilgangur samtakanna er að efla austfirska matarmenningu og vera samstarfsvettvangur þeirra aðila sem stunda rekstur með hráefni svæðisins. Starfssvæði samtakanna nær frá Þvottárskriðum í suðri að Sandvíkurheiði í norðri. Samtökin eru opin öllum sem stunda eða hyggjast stunda rekstur sem byggir á austfirsku hráefni, hvort sem það er við matvælaframleiðslu eða veitingarekstur.          Sjá nánar.