Markaðsstofa Austurlands
Miðvangi 1-3
700 Egilsstöðum
x
Sími 472 1750
Starfsmenn:
Ásta Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri
Gsm. 863 1750 netfang:
astathor@east.is
Sigrún Lóa Kristjánsdóttir, verkefnastjóri
Gsm. 863 1950 netfang:
east@east.is
Sara Dís Tumadóttir, netfang
info@east.is
Bjarney Jóhanna Kristjánsdóttir, netfang
info@east.is
Markaðsstofa Austurlands:
Markaðsstofa Austurlands er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 7. febrúar 1999 af sveitarfélögum á Austurlandi og ferðaþjónustuaðilum. Að baki sjálfseignarstofuninni starfar félag sömu aðila. Starfssvæðið nær frá Vopnafirði í norðri til Djúpavogshrepps í suðri, auk þess nær svæðið til hálendisins norðan Vatnajökuls og Möðrudals. Henni er ætlað að kynna og markaðssetja Austurland sem eina heild.
Markaðsstofan starfar náið með öllum ferða- og menningarmálafulltrúum á Austurlandi, sveitarfélögunum, öðrum hagsmunaðilum en fyrst og fremst með á annað hundrað ferðaþjónustufyrirtækjum á Austurlandi.
Helstu markmið
1. Að styrkja ímynd Austurlands í hugum ferðamanna.
2. Að annast markaðssetningu og kynningu á Austurlandi sem áfangastað ferðamanna bæði innanlands og utan.
3. Að kynna Austurland með öflugri heimasíðu, útgáfu og dreifingu bæklinga.
4. Að kynna möguleika fyrir ferðamenn með þátttöku í sýningum og öðru markaðsstarfi innanlands og utan í samstarfi við lykilaðila.
5. Að annast stjórnun og markaðssetningu sameiginlegra viðburða.
6. Að safna upplýsingum og halda utan um gagnagrunn um ferðaþjónustu á Austurlandi, vísa viðskiptum til ferðaþjónustuaðila eftir sérsviðum og geta mögulega boðið bókunarþjónustu fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
7. Að samræma markaðsstarf í ferðaþjónustu á Austurlandi m.a. með liðsinni og ráðgjöf við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á svæðinu.
8. Að vera leiðandi í stefnumótun í ferðamálum
9. Að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar í ferðaþjónustu á svæðinu m.a með þátttöku í ýmsum samstarfsverkefnum
10. Að veita aðilum Markaðsstofunar ráðgjöf við umsóknir í sjóði.
11. Að hvetja til og standa fyrir námskeiðum fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu á ýmsum sviðum sem snerta innviði ferðaþjónustunnar.
12. Að vera málssvari og vettvangur umræðu og samstarfs í ferðaþjónustu á Austurlandi.
Markaðsstofa Austurlands er opin alla virka daga frá kl. 9 - 17.