Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Egilsstöðum er landhlutamiðstöð.
Hún er staðsett að Miðvangi 1-3 á Egilsstöðum og er opin allt árið.
Samstarfsaðilar um upplýsingamiðstöðina eru m.a. Ferðamálastofa og Fljótsdalshérað (sem heimasveitarfélag).
Á upplýsingamiðstöðinni fæst gott úrval landakorta, vönduð göngukort af öllu Austurlandi og ferðahandbækur. Við seljum einnig veiðileyfi, útilegukort og aðstoðum við bókanir td. gistingu og hvalaskoðun.
Áætlunarbílar á firðina og á Mývatn og Höfn hafa viðkomu á Upplýsingamiðstöðinni.
Opnunartímar: Fram til 1.Júní er Upplýsingamiðstöðin að Miðvangi 1-3 Egilsstöðum opin alla virka daga frá klukkan 9 - 17 og á laugardögum frá klukkan 11 -15.00
Frá
1. júní til 15. september er opið virka daga frá kl. 8:30 - 18:00, og um helgar frá kl. 09 - 17.00
Síminn er 4712320 og netfangið info@east.is.
Starf upplýsingamiðstöðvarinnar er tvíþætt:
a. Upplýsingamiðlun: að taka við og miðla upplýsingum og kynningarefni til ferðamanna og ferðaþjónustuaðila á Austurlandi.
b. Upplýsingadreifing: að taka við og dreifa kynningarefni af Austurlandi til annarra landshlutamiðstöðva, svæðismiðstöðva og innlendra sem erlendra söluaðila
Hlutverk upplýsingamiðstöðvarinnar er:
• Að leitast við að gera dvöl ferðamanna sem ánægjulegasta og hvetja þá til að kynna sér ferðaþjónustu á Austurlandi (með von um að lengja dvöl þeirra)
• Að veita sem bestar upplýsingar um þjónustu á svæðinu og aðstoða við bókanir
• Að veita almenningar upplýsingar um svæðið og svara fyrirspurnum um landið í heild eða vísa fyrirspurnum til réttra aðila.
• Að dreifa bæklingum til ferðamanna og til annarra upplýsingamiðstöðva, auk þess að vera öðrum upplýsingamiðstöðvum á svæðinu til stuðnings um gögn, upplýsingagjöf og þjálfun starfsfólks.
• Að gefa ferðaþjónustuaðilum á markaðssvæðinu kost á að kynna starfsemi sína í húsnæði upplýsingamiðstöðvarinnar í þar til gerðum bæklingarekkum.
• Að skrá upplýsingar um þá aðila sem til upplýsingamiðstöðvarinnar leita.