- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Afþreying og áhugaverðir staðir á Austurlandi

Austurland í Alvöru,
er kjörorð okkar. Á Austurlandi er alvöru óspillt náttúra, alvöru afþreying og alvöru gestrisið fólk.  Hvort sem leiðin liggur upp til fjalla eða út til stranda eru ógrynni áhugaverðra staða og afþreyingar í boði. Kynntu þér það sem Austurland hefur upp á að bjóða áður en lagt er af stað og uppgvötaðu síðustu alvöru perlu landsins.



 










 Áhugaverðir staðir
 Afþreying
 Viðburðadagatal
 Ferðatillögur















  Heillandi náttúra einkennir Austurland, víðerni, hrikalegar fjallseggjar og djúpir lygnir firðir. Fossar, strendur, iðagrænir dalir og skógar. Jökulbreiður og heitar laugar. Hreindýr, selir, fuglar og fiskar.   Austurland er heillandi heimur.
Austurland býður upp á alvöru ævintýri og upplifun. Jöklaferðir, gönguferðir og hjólaferðir.Bátsferðir, kayaka og stangveiði.Söfn, menningu og sýningar. Njóttu lífsins á Austurlandi.
Á Austurlandi er alltaf eitthvað um að vera. Iðandi mannlíf og menning. Litlir og stórir viðburðir. Alþjóðlegir og innlendir. Héraðshátiðir, tónleikar eða myndlistarsýningar. Alvöru viðburðir milli himins og jarðar á Austurlandi.
Austurland býður upp á óteljandi ferðamöguleika, hvort sem er fótgangandi, hjólandi, keyrandi eða siglandi.
Líttu á ferðatillögur okkar sem gefa hugmyndir að góðu ferðalagi um Austurland fyrir alla aldurshópa.
   


 








 Ferðir með leiðsögn
 Fyrir börnin



 















Ferð með góðri leiðsögn gerir spennandi ferð betri.  Á Austurlandi er úrval góðra leiðsögumanna á sjó og landi

Að dorga af bryggjusporði,
veiða í ám og vötnum.Busla í volgum laugum, fara í sund eða kíkja á hreindýrin. Það er nóg að gera fyrir börnin.




   
Get Adobe Flash player