- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Áhugavert á Austurlandi 

Fjölbreytnin er engu lík. Á Austurlandi finnur þú hrikalega firði og snarbrött fjöll en líka breiða og frjósama dali með nokkrum af bestu veiðiám landsins. Hér eru víðáttumiklir skógar og eyðisandar, eldur og ís, volgar laugar og straumharðar jökulár. Frábærar gönguleiðir og strönd sem á sér vart sinn líka.
Dýralífið er fjölbreytt, þú kemst varla nær lunda en í Hafnarhólmanum á Borgarfirði eystra eða finnur betri aðstöðu til fuglaskoðunar en á Djúpavogi. Hreindýrin eru við vegakanntinn á veturna og vorin en á sumrin er best að sjá hreindýr á hálendinu. Í Húsey er frábært að skoða seli, fugla og aldrei að vita hvort hreindýr sjást ekki, því Úthérað er paradís fyrir fugla og dýr. Menningin blómstar í þorpum og bæjum, söfnin eru fjölbreytt; steinasöfn, sjóminjar, tækniminjar og menningarminjar svo fátt eitt sé nefnt.

 










Hápunktar
 Hálendið
 Saga og menning
 Náttúra






 





   



Dýralíf


 






 





   


Get Adobe Flash player