- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Ferðatillögur


Austurland býður upp á allt milli himins og jarðar þegar kemur að áhugaverðum stöðum og ferðum. Hvort sem er friðsælar göngur upp á hæstu tinda, kajakaferðir eða spennandi söfn, þá er þetta allt til staðar á Austurlandi og meira til. Leyfðu okkur að koma með hugmyndir að frábærri ferð um Austurland fyrir alla fjölskylduna.
Austurland í Alvöru. 

Fjölskyldan á Austurlandi
Fjölskyldu skemmtun á Austurlandi er margbreytileg of þar má finna skemmtun fyrir alla aldurshópa. Við bjóðum þér í Alvöru ferðalag með fjölskylduna um Austurland.
Göngum á Austurlandi
Á Austurlandi eru margar góðar gönguleiðir, langar og stuttar, margbreytilegar yfir fjöll og firnindi, dali og heiðar og út með sjó.
Hér eru sumar af bestu gönguleiðum Íslands með góðum gönguskálum. Sem dæmi má nefna
Víknaslóðir milli Borgarfjarðar og Seyðisfjarðar, Gerpissvæðið milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og Snæfell- Lónsöræfi.
Ferðafélögin á Austurlandi bjóða fjölda skemmtilegra ferða en það gera líka ferðaþjónustuaðilar víða um fjórðunginn.
Skemmtilegar hugmyndir að dagsferðum á
Fljótsdalshéraði eru í Perlum Fljótsdalshéraðs: Þerribjörg, Dyrfjöll- Stórurð,  og Heiðabýlin sem Ferðafélag Fljótsdalshéraðs sér um
Í Fjarðabyggð: Fjöllin fimm í Fjarðabyggð með Ferðafélagi Fjarðamanna,  
Á Seyðisfirði:  7 Tindar Seyðisfjarðar skipulagt af Gönguklúbbi Seyðisfjarðar.
Á Borgarfirði eystra: Víknaslóðir og fjöldi annarra fallegra gönguleiða sjá Borgarfjarðarvefinn

Góð göngukort af öllu Austurlandi fást í Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum. Nánari upplýsingar á upplýsingamiðstöðvum og hjá ferðaþjónustuaðilum.
                

                
Dýr og fuglar

Austurland er fullkomið til ferðalaga þar sem skoða á dýr og fugla. Á Austurlandi gefst kostur á að keyra fram á hreindýr á ferð eða seli meðfram fjörum . Allar tegundir fugla eru sýnilegar og góð aðstaða er á mörgum stöðum til fuglaskoðunar.
Láttu okkur gefa þér hugmyndir að spennandi ferð.
Snæfell - Lónsöræfi
Ein fegursta gönguleið á Íslandi

3-5 dagar frá Snæfellsskála um Eyjabakka í Geldingafell - þaðan áfram í Egilssel, skoðaður Víðidalur og loks í Múlaskála

Get Adobe Flash player