Fjölskyldan á Austurlandi
Austurland býður upp á fjölbreytileika þegar kemur að fjölskyldu ferðalögum. Þar er eitthvað fyrir alla aldurshópa dreift um allan fjórðunginn. Við höfum sett upp ýmsa möguleika á ferðum um Austurland sem hægt er að setja saman á ýmsu vegu.
Vopnafjörður
Þegar komið er til Vopnafjarðar er tilvalið að byrja daginn á að fara í sjóstangaveiði með fólkinu í Mávahlíð. Siglt er út á fjörðinn og er þetta áhugaverð og skemmtileg ferð fyrir alla aldurshópa. Þegar búið er að veiða sér í soðið er hægt að fara í Bustarfell sem er áhugavert safn um líf og störf á sveitabæjum í fyrri tíð á Íslandi. Safnið er mjög lifandi og er fólk þar að leik og störfum flesta daga sumars. Einnig er tilvalið að fara í Kaupvang og kíkja á Múlastofu og aðrar áhugaverðar sýningar á vegum Kaupvangs. |
|
|
Jökuldalsheiði og dalur
Klaustursel er eitt af heiðarbýlunum þar sem enn er búið. Þetta er skemmtilegur staður þar sem búin hefur verið til lítill húsdýragarður. Þarna er hægt að skoða meðal annars hreindýr, endur og refi. Að Klausturseli er einnig handverksmarkaður þar sem seldar eru vörur úr hreindýraleðri ásamt öðru handverki. Einnig er tilvalið að heimsækja Sænautasel sem er eitt af gömlu heiðarbýlunum. Þar er boðið upp á hjólabáta, veiði, |
|
|
Hróarstunga
Húsey er einn af þeim stöðum á Austurlandi sem er vel þess virði að heimsækja. Húsey er einn ad bæjunum í Hróarstungu . Þarna er meðal annars boðið upp á selaskoðun á hestbaki. Við mælum með degi hjá fólkinu í Húsey og þeim upplifunum sem sú heimsókn hefur í för með sér. |
|
|
Borgarfjörður Eystri
Þegar keyrt er til Borgarfjarðar Eystri er tilvalið að fara í fjölskyldugöngu um Stórurð. Þetta er svæði sem er vel aðgengilegt og hentar öllum til göngu, bæði stórum og smáum. Svæðið er óvenjulegt og skartar mikilli fegurð. Eftir góða göngu er svo tilvalið að fara á Hafnarhólmann á Borgarfirði Eystri þar sem hægt er að skoða lunda og fleiri fugla í návígi. hægt er að heimsækja Kjarvalsstofu og Ævintýralandið sem er söguland barnanna. |
|
|
|
Seyðisfjörður
Þegar komið er til Seyðisfjarðar er tilvalið að byrja daginn á heimsókn í Tækniminjasafnið. Þar er gott safn muna sem sýna vinnuhætti innan hinna ýmsu greina snemma á 19. öld.. Það er einnig tilvalið að fara með börnin í kajakaferð um fjörðinn. Eða fjallahjólaferð að Skálanesi og skoða fugla og náttúru. |
![]() | |
EgilsstaðirÞegar komið er til Egilsstaða er tilvalið að byrja daginn á ferð að Hengifossi. Keyrt er meðfram Lagarfljótinu. Það er auðveld ganga upp að fossinum og tekur ferðin um 2 tíma fram og tilbaka. eftir góða göngu er gott að koma við að Skriðuklaustri og njóta máltíðar og skoða allt sem Skriðuklaustur hefur upp á að bjóða. Á leið til Egilsstaða er tilvalið að fara í Atlavík og leigja sér bát eða reiðhjól og njóta útiveru með fjölskyldunni. |
![]() | |
Reyðarfjörður og Eskifjörður
Á Reyðarfirði er Stríðsárasafnið, þetta er skemtilegt safn um 2. heimsstyrjöldina og áhrif hennar á Reyðarfirði. Þetta er skemmtilegt safn fyrir alla aldurshópa og eru margir munir þar tengdir hersetu Breta á Reyðarfirði. Frá Reyðarfirði er tilvalið að fara í sund á Eskifirði og líta svo við í sjóminjasafninu þar. Einnig er hægt að leigja sér bát á Mjóeyri og fiska í soðið. Ef lítið er um fisk er tilvalið að snæða á Kaffihúsinu á Eskifirði. |
![]() | |
Norðfjörður
Í góðu veðri er útsýnið á leið til Norðfjarðar stórfenglegt. Þegar komið er til Norðfjarðar er gaman að byrja dvölina á reiðtúr frá Skorrastöðum, þar eru hestar fyrir alla, bæði vana og óvana reiðmenn. hægt er að fara í kajakasiglingu um fjörðinn og heimsækja safnahúsið sem inniheldur 3 söfn í einu. Að lokinni útivist er tilvalið að fá sér að borða á einum af kaffihúsum eða veitingastöðum Norðfjarðar. |
![]() |
Back








