- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Dýr og fuglar

Djúpivogur                             


Djúpivogur getur státað sig að einstaklega miklu fuglalífi og góðri aðstöðu til fuglaskoðunar. Þarna hefur verið gert mikið til að gera aðgengi að fuglum gott án þess að trufla líf þeirra.
Út á Búlandsnesi er góð aðstaða til að fylgjast með fuglunum í náttúrulegu umhverfi sínu. Hamarsfjörður býður líka upp á margbreytilegt fuglalíf. Frá Djúpavogi eru daglegar ferði út í Papey sem státar af yfir 30.000 lundapörum og öðrum fuglategundum. Einnig er gróðurlíf í Papey mjög fjölbreytilegt.

 

 

 Borgarfjörður Eystri


Aðstaða til fuglaskoðunar á Borgarfirði Eystri er til fyrirmyndar. Inn í þorpinu Bakkagerði er fuglaskoðunarhús og þar er hægt að skoða og fylgjast með fuglunum í sínu náttúrulega umhverfi án þess að trufla þá í daglegu lífi.
Á Hafnarhólmanum er einng mjög góð aðstaða til að skoða fugla og þá sértsaklega lunda.

 

 

Seyðisfjörður


 Á Skálanesi í Seyðifirði hefur verið komið upp ferðaþjónustu sem leggur áherslu á náttúruskoðun, fugla og dýraskoðun.
Þarna er paradís náttúruunnenda og hægt að fylgjast með dýrum og fuglum í nánd.

Húsey



Húsey býður upp á fugla og dýraskoðun í fagurri náttúru. Það sem er einstakt í Húsey er að þar gefst möguleiki á að fara í selaskoðun á hestbaki. Ferðina geta þeir bæði farið sem eru vanir hesta menn sem og þeir sem minni reynslu hafa.
Ferð í Húsey er einstök upplifun.




























Back
Get Adobe Flash player