- Afþreying og staðir
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share
Mynd tengd atburði: Húsin á Seyðisfirði

Húsin á Seyðisfirði

09. janúar - 14. febrúar

Reynir Jónsson (1938), eða Reynir rakari, eins og margir þekkja hann, er borinn og barnfæddur Akureyringur. Hann er mörgum kunnur eftir hart nær hálfrar aldar starf á hársnyrtistofu sinni auk margskonar félags og trúnaðarstarfa. Listin var þó alltaf nálæg því hann var lengi ötull hljóðfæraleikari og lék í fjölmörgum dans og djasshljómsveitum auk langrar þjónustu í Lúðrasveit Akureyrar. Reynir hefur fengist við myndlist um fjölda ára. Hann er að mestu sjálfmenntaður í myndlist, en hefur sótt stutt námskeið, lesið sér til, æft sig og lært af reynslunni. Árið 2006 hélt hann stóra yfirlitssýningu á málverkum sýnum í Ketilhúsinu á Akureyri. Hann segir sjálfur að hann klæji alltaf í fingurna eftir því að mála, þegar hann kemur til Seyðisfjarðar og sér öll gömlu húsin, sem bíði greinilega eftir því að verða fest á strigann! Myndirnar eru alla málaðar með acryl litum.
Back

<<<september 2010>>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930123
45678910
Get Adobe Flash player