- Gisting og matur
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Veitingastaðir

Borgarfjörður eystri

Álfacafé

Opna
Heimilisf.:Álfacafé
Staðsetning:720,Borgarfjörður
Sími:892-9802
Fax:
Veffang:
Þjónusta Matsölustaðir, Sýningar,
prenta | Loka

Veitingasalan Fjarðaborg

Heimilisf.:Fjarðaborg
Staður:720,Borgarfjörður
Sími:472-9962
Fax:

Breiðdalsvík

Hótel Bláfell

Hótel Bláfell

Opna
Heimilisf.:Sólvöllum 14
Staðsetning:760,Breiðdalsvík
Sími:475-6770
Fax:475-6668
Veffang:
Hótel Báfell er staðsett á Breiðdalsvík. Njótið fagurs sjávarútsýnis, sem er rammað inn af klettum, hæðum og fjöllum.
Breiðdalur er þekktur fyrir veðursæld og ýmsar gönguleiðir sem leiða þig á vit ævintýranna í Breiðdal.
Hægt er að veiða í 3 mismunandi ám í dalnum og á eftir er tilvalið að njóta þes að fara í sauna og slappa af við arininn.
Stutt er í góða sundlaug með heitum potti.
Hótel Bláfell hefur yfir 22 herbergjum að ráða.
Þjónusta Einkagisting, Ferðaskipuleggjendur, Hótel, Matsölustaðir,
prenta | Loka

Gistiheimilið - Cafe Margrét

Heimilisf.:Þverhamar
Staður:760,Breiðdalsvík
Sími:475-6625
Fax:

Hótel Staðarborg

Heimilisf.:
Staður:760,Breiðdalsvík
Sími:475-6760
Fax:475-6761

Djúpivogur

Hótel Framtíð

Opna
Heimilisf.:Vogaland 4
Staðsetning:765,Djúpivogur
Sími:478-8887
Fax:478-8187

Hótelið hefur til umráða 42 herbergi. 18 herbergi búin öllum helstu þægindum, baðherbergi, síma og sjónvarpi. Einnig býður hótelið uppá 24 herbergi með handlaug. Mjög góð aðstaða fyrir svefnpokahópa. Sturtur og sauna eru í kjallara gamla hússins.

Hótelið býður uppá þrjá veitingasali. Nýr veitingasalur sem tekur 250 manns í sæti, gamli veitingasalinn sem tekur um 40 manns í sæti og á bar hótelsins tekur 50 manns í sæti. Mjög fjölbreyttur og góður matseðill er í gangi yfir sumarmánuðina. Sérstök áhersla er lögð á sjávarrétti úr glænýjum fiski, helst frá fiskimönnum staðarins.

Þjónusta Einkagisting, Gistiheimili, Hjólaleigur, Hótel, Íbúðir, Matsölustaðir, Sjóstangaveiði, Sumarhús, Svefnpokagisting, Tjaldsvæði,
prenta | Loka

Langabúð

Heimilisf.:Búð I
Staður:765,Djúpivogur
Sími:478-8220
Fax:478-8188

Egilsstaðir

Café Nilsen

Opna
Heimilisf.:Tjarnarbraut 1
Staðsetning:700,Egilsstaðir
Sími:471-2626
Fax:
Veffang:
Þjónusta Matsölustaðir,
prenta | Loka

Gistihúsið Egilsstöðum

Opna
Heimilisf.:Egilsstaðir l-ll
Staðsetning:700,Egilsstaðir
Sími:471-1114
Fax:471-1266

Gistihúsið Egilsstöðum er staðsett á bökkum Lagarfljóts aðeins 300 m frá þéttbýlinu Egilsstöðum. Gistihúsið hefur allt verið gert upp og leitast við að endurskapa þann ytri og innri glæsileika sem það var rómað fyrir allt frá fyrstu árum síðustu aldar.

Frá Gistihúsinu er unaðslegt útsýni yfir Fljótið og til fjalla, auk þess sem aldnir viðir mynda einstakan skógargarð. Rómantík og gamlar hefðir eru hafðar í öndvegi og gestir njóta fyrsta flokks þjónustu í einstakri umgjörð íslenskrar náttúru.

Þjónusta Bændagisting, Hótel, Matsölustaðir,
prenta | Loka

Hótel Edda Egilsstaðir

Opna
Heimilisf.:Menntaskólanum
Staðsetning:700,Egilsstaðir
Sími:444-4880
Fax:471-2776

Hvert sem leið þín liggur um landið í sumar finnur þú alltaf Edduhótel í nágrenninu, þar sem þú getur staldrað við eða haft bækistöð á meðan þú uppgötvar náttúruperlur landsins.

Hvort sem þú leitar að svefnpokaplássi eða rúmgóðu hótelherbergi með baði geturðu treyst því að skammt undan er Edduhótel sem býður hagstætt verð og góða þjónustu. Á nokkrum hótelanna eru Eddu PLÚS herbergi sem uppfylla þrjár stjörnur, en þau eru vel búin með baði, síma og sjónvarpi.

Þjónusta Hótel, Matsölustaðir,
prenta | Loka

Hótel Hérað Icelandair Hotels

Opna
Heimilisf.:Miðvangur 5-7
Staðsetning:700,Egilsstaðir
Sími:471-1500
Fax:471-1501
Hótel Hérað er yndislegt athvarf í hjarta Egilsstaða, hinum blómlega höfuðstað Austurlands. Gjörið svo vel að njóta alls þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða meðan á dvölinni stendur.

Hótelið er á þremur hæðum en það var stækkað um helming árið 2004 sem gefur okkur kost á að bjóða glænýja ráðstefnuaðstöðu með fullkomnum fundarbúnaði fyrir allt að 120 manns.

Að  auki er nóg rými til að njóta unaðssemda lífsins á fyrsta flokks veitingastað, þar sem m.a. er borin fram hreindýrasteik, og á barnum þar sem eru svalir fyrir sólarlagsunnendur. Við erum í 654 km fjarlægð frá Reykjavík en flugtíminn er 60 mínútur.
Þjónusta Hótel, Matsölustaðir,
prenta | Loka

Café Valný

Heimilisf.:Miðvangur 2-4
Staður:700,Egilsstaðir
Sími:471-2219
Fax:

KHB Söluskáli og kaffihús

Heimilisf.:Egilsstaðir
Staður:700,Egilsstaðir
Sími:471-2220
Fax:

Eskifjörður

Ferðaþjónustan Mjóeyri

Ferðaþjónustan Mjóeyri

Opna
Heimilisf.:Strandgata 120
Staðsetning:735,Eskifjörður
Sími:477-1247
Fax:477-1247
Veffang:www.mjoeyri.is

Við bjóðum gestum okkar að skipuleggja fyrir þá ýmiskonar afþreyingu s.s. veiðiferðir, skíðaferðir, svæðisleiðsögn, náttúruskoðun, köfun, ísklifur, fuglaskoðun, hellaskoðun, hreindýraleiðsögn, bátsferðir, hvataferðir, skoðunarferðir, kajakferðir, óvissuferðir, gönguferðir, stjörnu– og norðurljósaskoðun, hestaferðir, golf, gönguferð að flugvélaflaki ofl.. Í Fjarðabyggð eru einnig
fjölbreytt og skemmtileg söfn og margvíslegar söguslóðir.
Við erum einnig með bátaleigu sem staðsett er í Randulffssjóhúsi. Bátarnir eru samtals 9, allir sex manna smábátar að gerðinni Corsiva 430. Bátarnir eru 4,3 metra langir og eru með 4hp Selva utanborðsmótora.
Í Randulffssjóhúsi eru langborð fyrir allt að áttatíu manns auk grill- og salernisaðstöðu. Á efri hæð hússins er verbúð síldarsjómannana í sinni upprunalegu mynd þar sem gestum gefst tækifæri til að kynna sér aðstæður sjó- og verkamanna hér á árum áður. Við bjóðum uppá ýmsar uppákomur í húsinu s.s. grillveislur, ættarmót og annan mannfagnað þar sem boðið er uppá hákarl og harðfisk sem framleiddur er á Eskifirði. 
Meira um Randulffssjohus má finna hér.
Í Fjarðabyggð eru einnig fjölbreytt og skemmtileg söfn, frábærar sundlaugar og margvíslegar söguslóðir.

Þjónusta Bátaferðir, Einkagisting, Ferðaskipuleggjendur, Gistiheimili, Gönguferðir, Jeppa- og jöklaferðir , Kæjakaferðir, Matsölustaðir, Sjóstangaveiði, Skíðasvæði, Sumarhús, Svefnpokagisting, Sýningar, Söfn, Veiði í ám og vötnum , Vetrar afþreying,
prenta | Loka
Gistihúsið Mjóeyri

Gistihúsið Mjóeyri

Opna
Heimilisf.:Strandgata 120
Staðsetning:735,Eskifjörður
Sími:477-1247 / 696-0809
Fax:
Veffang:

Gistiheimilið er staðsett í fögru og friðsælu umhverfi á Mjóeyri, rétt utan við þéttbýlið við Eskifjörð.
Húsið er nýlega innréttað, var byggt árið 1895 og ber merki gamalla og nýrra tíma. Við leggjum áherslu á hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft.

Stórkostlegt útsýni er út Reyðarfjörð, inn Eskifjörð, yfir Hólmanes og Hólmatind. Hægt er að fá morgunmat og kvöldmat ef pantað er með fyrirvara. Boðið er upp á gistingu í fimm, eins til þriggja manna herbergjum með sameiginlegum eldhúskrók, setustofu með sjónvarpi og góða hreinlætissaðstöðu. Útvarp og sjónvarp er í öllum herbergjum. Reyklaust umhverfi er innandyra. Stór sólpallur er við innganginn á neðri hæð og þaðan er einnig gengið inn í svefnskála með svefnpokaplássi. Í svefnskálanum er eldunar- og hreinlætisaðstaða.

Þjónusta Einkagisting, Gistiheimili, Matsölustaðir, Sumarhús, Svefnpokagisting, Sýningar, Söfn,
prenta | Loka

Kaffihúsið Eskifirði

Heimilisf.:Strandgata 10
Staður:735,Eskifjörður
Sími:477-1064
Fax:

Fáskrúðsfjörður

Kaffi Sumarlína Kaffi Sumarlína Kaffi Sumarlína

Kaffi Sumarlína

Opna
Heimilisf.:Búðavegi 59
Staðsetning:750,Fáskrúðsfjörður
Sími:475-1575
Fax:
Veffang:
Café Sumarlína er lítið kaffihús og veitingastaður á Faskrúðsfirði sem býður uppá ýmsar gerðir af kaffi, kakó, tertur, kökur auk þess að vera með fjölbreyttan matseðil.
Sumarlína stendur við smábátahöfnina og er hægt að sitja á palli fyrir framan húsið og njóta útsýnisins og veðurblíðunar.
Café Sumarlína er opin allt árið frá kl.11.00-22.00.Grillið lokar kl.21.00.Um helgar er barin opin til kl.03.00.Veitingastaðurinn rúmar alltað 50 manns gerum tilboð í hópa að óskum hvers og eins. Þjónusta Matsölustaðir,
prenta | Loka

Fransmenn á Íslandi

Heimilisf.:Búðavegur 8
Staður:750,Fáskrúðsfjörður
Sími:864-2728
Fax:

Hótel Bjarg

Heimilisf.:Skólavegur 49
Staður:750,Fáskrúðsfjörður
Sími:475-1466
Fax:475-1476

Söluskáli Stefáns Jónssonar

Heimilisf.:Búðavegur 60
Staður:750,Fáskrúðsfjörður
Sími:475-1405
Fax:

Neskaupsstaður

Reyðarfjörður

Fjarðahótel

Fjarðahótel

Opna
Heimilisf.:Búðareyri 6
Staðsetning:730,Reyðarfjörður
Sími:474-1600
Fax:474-1601
Veffang:
Þjónusta Hótel, Matsölustaðir,
prenta | Loka

Hjá Marlín - Kaffihús og gisting

Opna
Heimilisf.:Vallargerði 9
Staðsetning:730,Reyðarfjörður
Sími:892-0336
Fax:

Hjá Marlín eru 5 2ja manna herbergi, með skrifborði og fataskáp.

Þráðlaus internettenging er í húsinu, gestum að kostnaðarlausu.

Baðherbergi eru 4, 2 með sturtu.

Rúmgóðar setustofur með sjónvarpi, með gervihnattastöðvum,

myndbandstæki og fjöldamargar myndir.

Internet-tengd tölva, gestum að kostnaðarlausu.

Þjónusta Farfuglaheimili, Gistiheimili, Matsölustaðir,
prenta | Loka

Café Cosý

Heimilisf.:Búðargata 6
Staður:730,Reyðarfjörður
Sími:474-1666
Fax:

Gistihúsið Tærgesen

Heimilisf.:Búðargata 4
Staður:730,Reyðarfjörður
Sími:470-5555 / 660-5905
Fax:470-5556

Seyðisfjörður

Hótel Aldan

Hótel Aldan

Opna
Heimilisf.:Norðurgata 2
Staðsetning:710,Seyðisfjörður
Sími:472-1277
Fax:472-1677

Herbergin okkar eru í tveimur sögulegum byggingum umhverfis lónið í miðjum Seyðisfjarðarkaupstað. Þessum tveimur byggingum skiptum við upp í tvö hótel; Hótel Ölduna og Hótel Snæfell, sem hvor um sig hafa að geyma 9 herbergi hvert með sinn sjarma og stíl.

Hótel Aldan

Hótel Aldan hefur í nær heila öld hýst bankann í Seyðisfirði. Upphaflega hafði það þjónað sem eitt af bestu hótelum landsins. Mikil áhersla hefur verið lögð á að viðhalda sögulegum anda hússins, en um leið tekið tillit til nútíma þæginda.

Árið 1898 voru 19 herbergi í húsinu, þar af eitt dans og hnattborðssalur. Síðan húsið hefur gengið í endurnýjun lífdaga og er orðið glæsilegra en nokkru sinni fyrr, þá bjóðum við þar upp á 7 tveggja manna og 2 þriggja manna herbergi.

Í flestum herbergjunum er pláss fyrir auka rúm og þar að auki er hægt að koma fyrir sex manna fjölskyldu í einu af herbergjunum.

Vegna sveigjanlegrar hönnunar er hægt að setja saman sum herbergin þannig að þau myndi "svítur" eða fjölskylduherbergi fyrir 4 til 6 persónur, án þess að bæta við auka rúmum.

Hótel Snæfell

Hótel Snæfell er þriggja hæða bárujárnsklætt timburhús byggt 1908. Það stendur við lónið þar sem er að finna fjölskrúðugt dýralíf fugla, laxfiska og oft á tíðum má sjá sel forvitnast um hagi Seyðfirðinga. Húsið var upprunalega pósthús bæjarins og árið 1943 var því breytt í hótel. Í gegnum árin hefur það gengt mörgum hlutverkum, m.a. hefur verið þar skóvinnuverkstæði, leigubílastöð og stór veitingastaður. Húsið hefur einnig verið heimili nokkurra fjölskyldna áður en það varð hótel. Meðal íbúa þar var Ingi T. Lárusson okkar ástsæla tónskáld.


Þjónusta Einkagisting, Ferðaskipuleggjendur, Hótel, Matsölustaðir, Svefnpokagisting,
prenta | Loka
Náttúru- og menningarsetrið Skálanes Náttúru- og menningarsetrið Skálanes Náttúru- og menningarsetrið Skálanes

Náttúru- og menningarsetrið Skálanes

Opna
Heimilisf.:Skálanes
Staðsetning:710,Seyðisfjörður
Sími:690-6966 / 861-7008
Fax:

Skálanes, Náttúru og Menningarsetur starfar í nýuppgerðu og heimilislegu húsi staðsettu innan eigin einka náttúruverndarsvæðis í mynni Seyðisfjarðar á Austurlandi. Mikil fjallasýn, stærðar fuglabjörg, rekastrendur og graslendi rammað inn af hafinu gera Skálanes tilvalið til afslöppunar, lærdóms og íhugunar í áhugaverðu umhverfi.

Skálanes, Náttúru- og Menningarsetur, er tilvalið fyrir þá sem vilja læra um Austurland og kynna sér umhverfi og menningu svæðisins. Við erum fullviss um að dvöl á Skálanesi skilur eftir sig ekki einungis frekari þekkingu á svæðinu heldur einnig góðar minningar, upplifanir og reynslu sem staðkunnugir leiðsögumenn okkar stuðla að með því að miðla sérþekkingu sinni á svæðinu.

Á Skálanesi er gestum aðgengileg sú þekking sem er til staðar á staðnum er gestum aðgengileg, hvort sem er á rituðu máli, frásögn eða með samskiptum við einhvern af þeim fjöldamörgu hópum sem sækja okkur heim eða starfa á setrinu við rannsóknir, vöktun eða starfsmennt á hverju sumri. Viðfangsefni starfseminnar skapar deiglu hugmynda og þekkingar á fjölbreyttum sviðum s.s. vistfræði, náttúrufræði, sagnfræði, fornleifafræði, umhverfisverndar, hefðbundins handverks og svo mætti lengi telja. Þekkingu á þessum viðfangsefnum er miðlað til gesta eftir óskum þeirra.

Þjónusta Ferðaskipuleggjendur, Gistiheimili, Gönguferðir, Matsölustaðir, Svefnpokagisting,
prenta | Loka

Kaffi Lára

Heimilisf.:Noðurgata 3
Staður:710,Seyðisfjörður
Sími:472-1703
Fax:

Skaftfell Miðstöð Myndlistar á Austurlandi

Heimilisf.:Austurvegur 42
Staður:710,Seyðisfjörður
Sími:472-1632
Fax:

Stöðvarfjörður

Brekkan

Heimilisf.:Fjarðarbraut 44
Staður:755,Stöðvarfjörður
Sími:475-8939
Fax:

Vopnajförður

Hjáleigan í Bustafelli

Hjáleigan í Bustafelli

Opna
Heimilisf.:Bustafell
Staðsetning:690,Vopnafjörður
Sími:471-2211 / 473-1466
Fax:

Kaffi- og þjónustuhús sem ber heitið Hjáleigan.
Áður fyrr leigðu bændur part úr landi stærri búa og voru það kallaðar hjáleigur, þaðan er nafnið dregið.

Við seljum kaffi og meðlæti. Einnig er seld  kjötsúpa og brauð. Stærri hópar þurfa að panta súpuna fyrirfram.

Kaffihlaðborð alla sunnudaga.

Opið  10. júní—10. september frá kl. 12.00—18.00 daglega.

Þjónusta Gönguferðir, Matsölustaðir,
prenta | Loka
Minjasafnið á Bustarfelli

Minjasafnið á Bustarfelli

Opna
Heimilisf.:
Staðsetning:690,Vopnafjörður
Sími:473-1466 / 471-2211
Fax:473-1465
Í hinum fallega dal,   Hofsárdal, stendur gamla ættarsetrið Bustarfell. Þessi torfbær með rauðum stöfnum og grasi vöxnu þaki er einn af elstu og best varðveittu bæjum sinnar tegundar á landinu.Árið 1532 kaupa Árni Brandsson og kona hans Úlfheiður Bustarfell. Síðan hefur sama ættin búið þar.
Bærinn geymir margar sagnir um land og þjóð. Heimsókn í Minjasafnið á Bustarfelli er ferð í gegnum sögu búskapar og breyttra lífshátta frá aldamótunum 1800 fram á miðja 20. öld.Sama ættin hefur búið á Bustarfelli frá 1532 til 1966 að ábúendur  fluttu  í nýtt íbúðarhús.
Árið 1943 seldi Methúsalem Methúsalemsson ríkinu bæinn með því skilyrði að hann yrði byggður upp og varðveittur um ókomin ár.
Árið 1982 var minjasafnið gert að sjálfseignarstofnun þegar Elín Methúsalemsdóttir afhenti Vopnfirðingum munina í bænum til varðveislu. Fram að því var það einkasafn. Þjónusta Matsölustaðir, Sýningar, Söfn,
prenta | Loka

Hótel Tangi

Heimilisf.:Hafnarbyggð 17
Staður:690,Vopnafjörður
Sími:473-1840
Fax:473-1841

Kaupvangskaffi

Heimilisf.:Kaupvangur 6
Staður:690,Vopnafjörður
Sími:473-1331
Fax:
Get Adobe Flash player