- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Um Austurland


Austurland nær samkvæmt hefð frá Langanesi í norðri að Almannaskarði í suðri. Austurland er einstaklega fjölbreytt og þekkt fyrir einróma veðursæld á sumrum.Austurland er paradís fyrir áhugafólk um náttúru.

Hér eru heimkynni hreindýra, nálægð við seli og gríðarlegur fjöldi fugla.  Landslagið er einstaklega fjölbreytt. Stutt er inn að Vatnajökli og hálendið svíkur engan með Snæfell og Kverkfjöll í lykilhlutverki.
Hér eru hrikleg fjöll og lygnir firðir í nágrenni við fengsæl fiskimið. Í flestum fjarðabotnum standa friðsælir fiskibæir þar sem sjávarútvegur er enn ríkjandi atvinnugrein.Víða er að finna fallega skógivaxna dali og fossar eru á fáum stöðum fleiri eða fjölbreyttari.  

Þá er Austurland þekkt meðal steinasafnara og jarðfræðiáhugafólks, litskrúð í fjöllum gleður augað og við fætur liggja oft einstakir hálfeðalsteinar.

Austurland er ríkt að menningu, sögum og sögnum, hvort sem menn hafa áhuga á Lagarfljótsorminum, álfum, tröllum, Hrafnkeli Freysgoða eða Sjálfstæðu fólki þá finna allir eitthvað sem vekur áhuga.


 











Gagnlegar upplýsingar
 Bæir og þorp
 Markaðsstofa Austurlands
 Upplýsingamiðstöð Austurlands










 
 
 
 

Hér færðu svör við algengum spurningum, upplýsingar um veður og færð, aðstoð og öryggi.


Á Austurlandi eru fjölmargir bæir og þorp með einstakri menningarsögu, góðum gönguleiðum, áhugaverðri afþreyingi, fjölbreyttum gististöðum og úrvali veitingastaða sem bjóða upp á gómsætar Austfirskar krásir.

Markaðsstofa Austurlands er til húsa í Miðvangi 1 áEgilsstöðum
Sími  4721750
netföng  astathor@east.is
east@east.is

Upplýsingamiðstöð Austurlands er til húsa að  Miðvangi 1, 700 Egilsstöðum
Sími 4712320
tölvupóstur info@east.is eða east@east.is
   
Get Adobe Flash player