Afþreying
Austurland býður upp á fjölbreytta möguleika í afþreyingu þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Mikið úrval er af frábærum gönguleiðum og skemmtileg söfn eru nánast í hverjum bæ. Golfvellir eru víða ásamt ágætum sundlaugum. Veiðiferðir, reiðtúrar og bátsferðir eru einnig vinsælar. Hægt er að fara í skipulagðar skoðunarferðir á vegum ferðaskrifstofa og ferðaþjónustuaðila.
Gisting
Allir ættu að finna gistingu við sitt hæfi. Hér eru fyrsta flokks hótel, gististaðir af öllum gerðum, sumarhús og tjaldstæði.
Veitingar
Veitingastaðir eru víða á Austurlandi. Austurland er matarkista. Afbragðs veitingastaðir hafa sérhæft sig og nota hráfefni fjórðungsins. Þar má telja hreindýr, fugla, nauta-, lamba- og geitakjöt. Einnig sjávarfang, jurtir og ber. Nokkrir staðir bjóða ferðir þar sem þú veiðir og fengurinn er matreiddur í ferðalok.
Upplýsingamiðstöðvar
Upplýsingamiðstöðvar er að finna víða á Austurlandi. Upplagt er að nýta sér þær til að kynns sér hvers kyns fróðleiks um t.d. áhugaverða staði í grenndinni, gistingu og afþreyingu.
Fyrir nánari upplýsingar um þjónustuaðila og þjónustu þeirra vinsamlegast notið Þjónustuleit sem er að finna vinstra megin á hverri síðu.
Atburðir
Á Austurlandi eru árvissir viðburðir sem vert er fylgjast með. Páskafjör, Dagar Myrkurs og Jól á Austurlandi eru fjórðungshátíðir. Síðan eru bæjarhátíðir sem margar hverjar eru orðin landsþekktar. Umfjöllun um þær er að finna á hverjum stað fyrir sig.
Vinsamlegast nýtið ykkur Atburðadagatalið til þess að fræðast nánar um hvað er á döfinni hverju sinni.
- Um Austurland
-Þjónustuleit
Þjónusta á Austurlandi
Back










































