- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share
Nýtt fréttabréf Markaðsstofu Austurlands

Fréttir úr ferðaþjónustunnni. Lestu fréttabrefið hér


    

Ferðafregnir

Aðalfundur FSÍ                          


Aðalfundur Ferðamálasamtakana var haldin 3-4.nóv. á Akureyri. Þar var meðal annars kosin nýr formaður samtakana.
Fréttatilkynninguna má lesa hér.

 

 

Fréttabréf MA á netinu


Nú er hægt að lesa Fréttabréf Markaðsstofunnar hér. Fréttir og fróðleikur úr ferðaþjónustunni á Austurlandi. Nýjungar og spjall.



 Dvalarstaður lista- og fræðimanna í Jensenshús



Jensenshús sem er í eigu Fjarðabyggðar var byggt árið 1837 af Jens Peder Jensen. Jensenshús er elsta íbúðarhús Austurlands og eitt elsta uppistandandi íbúðarhús landsins. Húsið var friðað 1. janúar 1990. Nýbúið er að gera húsið upp og lagfæra það og nú er það nýtt sem dvalarstaður fyrir lista- og fræðimenn, íslenska og erlenda.

Ekki er gert ráð fyrir neinni greiðslu vegna dvalar í Jensenhúsi annarri en afnot af síma. Hins vegar er ætlast til að þeir sem þar dvelja komi á einhvern hátt á framfæri því sem þeir eru að vinna að í sinni list og/eða fræðigrein eða öðrum verkum sínum meðan á dvalartíma stendur. Gesturinn getur því verið beðinn um að halda sýningu, tónleika, fyrirlestur eða taka þátt í samkomu, skilja eftir listaverk eða eitthvað annað sem um semst milli hans og ferða- og menningarfulltrúa fyrir hönd menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar Fjarðabyggðar. Verkefni sem efla menningu í Fjarðabyggð munu njóta forgangs í umsóknarferlinu en litið er til fleiri þátta.

Menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd ásamt menningar- og ferðamálafulltrúa og forstöðumanni Safnastofnunar velur úr innsendum umsóknum í samvinnu við forstöðumann Kirkju- og menningarmiðstöðvar Fjarðabyggðar.

Fyrsti gestur hússins var rithöfundurinn og ljóðskáldið Sigurjón Birgir Sigurðsson betur þekktur sem Sjón. Hann dvaldi nú nýlega í húsinu ásamt syni sínum Flóka. Sjón á sterkar rætur til Eskifjarðar en hann dvaldi þar oft á sumrin sem krakki og spilaði fótbolta á lóðinni við hliðina á Jensenshúsi. Feðgarnir létu vel af dvölinni og sögðu gott að dvelja í húsinu og að þar væri mjög góður andi. Sjón var með kvöldvöku í Randulfssjóhúsi á Eskifirði í Gönguvikunni Á fætur í Fjarðabyggð, þar spjallaði hann við gesti og las upp úr bók sinni. Þeir feðgar eyddu annars miklum tíma í að skoða bæinn, fiska á bryggjunum og láta líða úr sér í sundlauginni.

Þeir sem hafa áhuga á að dvelja í húsinu er bent á að hafa samband við ferða- og menningarfulltrúa Hildigunni Jörundsdóttur, netfang: hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is , sími: 860-4726.

Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíður Fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is undir menning- og tómstundir.

























Back
Get Adobe Flash player