- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Borgarfjörður eystri

Vefsíða: http://borgarfjordureystri.is/
Íbúafjöldi: 150
Borgarfjörður eystri
Borgarfjörður eystri er nyrsti fjörðurinn sem gengur inn í Austfjarðahálendið.
Hann er um 4ja km breiður og 5 km langur og mjög opinn fyrir hafáttum, einkum norðaustanátt. Undirlendi er með ströndinni og inn af fjarðarbotninum er breiður og grösugur dalur um 8 km langur.  Dalinn umlykur formfagur og litskrúðugur fjallahringur sem gerir Borgarfjörð eitt fegursta byggðarlag á landinu.  Fjöllin eru meðal þeirra elstu á Íslandi, um 10-15 milljón ára gömul og hér er að finna annað stærsta líparítsvæði landsins. 

Bakkagerði er fallegt sjávarþorp þar sem búa um 130 manns.  Flestir lifa á sjávarafla og búskap, en ferðamennska er vaxandi.  Þorpið er snyrtilegt og fólkið gestrisið og listfengt.  Kirkjan er prýdd altaristöflu sem Jóhannes Sveinsson Kjarval málaði.  Við þorpið er Álfaborgin þar sem drottning álfanna er sögð búa og er þangað göngustígur og útsýnisskífa svo menn geti dáðst að útsýni hennar. Í Hafnarhólmanum er eitt besta aðgengi að fuglum í bjargi sem hugsast getur.

Frá Borgarfirði er hægt að komast til Breiðuvíkur, Húsavíkur og Loðmundafjarðar eftir jeppaslóða.  Í og við Borgarfjörð er eitt best skipulagða göngusvæði landsins með stórbrotnu og fjölbreyttu landslagi.  Ferðaleiðir í Víknaslóðir eru góð dæmi um það.

Frá Borgarfirði er hægt að komast til Breiðuvíkur, Húsavíkur og Loðmundafjarðar eftir jeppaslóða. 

Picture Gallery

Borgarfjörður eystri Borgarfjörður eystri Borgarfjörður eystri
Get Adobe Flash player