- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Breiðdalsvík

Vefsíða: www.breiddalur.is
Íbúafjöldi: 197
Breiðdalsvík

Breiðdalur er víðlend sveit miðað við aðra dali sem ganga inn af Austfjörðum. Breiðdalur skiptist með greinilegum mörkum í þrjá hluta, Norðurdal, Suðurdal og Útsveit.  Breiðdalsvík, sem er þjónustumiðstöð hreppsins, er tiltölulega ungt kauptún og fór ekki að byggjast að marki fyrr en upp úr 1960. Íbúafjöldi 1. des. 2008 var 129.

Um byggð á Breiðdalsvík er ekki vitað með fullri vissu fyrr en um 1880 er Gránufélagið lætur reisa þar vörugeymsluhús. En föst búseta er þar þó ekki fyrr en 1896 er Brynesverslun á Seyðisfirði reisir hús undir sína starf-semi efst á Selnesi við austurkrók Selnesbótar. Vorið 1906 brann verslunarhúsið til kaldra kola og var þá sama ár reist nýtt verslunarhús vestan víkurinnar. Stendur það hús enn og mun því vera elsta hús Breiðdalsvíkur. Gamla Kaupfélagið hefur verið endurreist og þar er nú jarðfræðisetur enda vel við hæfi þar sem Austfjarðaeldstðin er í Breiðdalnum eins og litir fjallanna gefa til kynna.  Þar er stofa Stefáns Einarssonar fv. prófessors við John Hopkins háskóla í Baltimore og uppbygging á starfsemi hússins í fullum gangi.

Picture Gallery

Breiðdalsvík
Get Adobe Flash player