- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Egilsstaðir

Vefsíða: www.fljotsdalsherad.is
Íbúafjöldi: 2701
Egilsstaðir
Þéttbýliskjarninn Egilsstaðir var stofnaður árið 1947 með lögum frá Alþingi.  Þá voru íbúar 110 en eru í dag nálægt 3.000. Helsta atvinnugreinin er þjónusta. 

Vegferð um Egilsstaði er upplagt að hefja við hringsjá á Hömrum fyrir ofan gamla Sláturhúsið sem nú er menningarmiðstöð.  Gálgaklettur er skammt frá Egilsstaðakirkju.  Þar var aftökustaður áður fyrr og áletraður skjöldur um staðinn.   Við kirkjuna er víðsýni yfir Löginn þar sem vegleg verðlaun bjóðast þeim sem getur tekið mynd af Lagarfljótsorminum. 

Annar útsýnisstaður er á klettinum við sundlaugina þar sem Kvennavarðan stendur en hún var hlaðin í tilefni Vest-Norden ráðstefnu kvenna sem haldin var á Egilsstöðum.
 
Á Egilsstöðum er alþjóðaflugvöllur, menntaskóli, menningarhús, safnastofnun og afgreiðsla Sýslumanns.
 

Picture Gallery

Egilsstaðir Egilsstaðir Egilsstaðir
Get Adobe Flash player