- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Mjóifjörður

Vefsíða: http://www.fjardabyggd.is/Index/Mjoifjordur
Íbúafjöldi: 37
Mjóifjörður
Mjóifjörður er 18 km langur og mjór fjörður milli Norðfjarðaflóa og Seyðisfjarðar.  Hann er einstaklega veðursæll, berjablár og fagurlega innrammaður.  Það er upplifun fyrir malbiksakandi fólk að fara til Mjóafjarðar frá Fljótsdalshéraði og alla leið að Dalatanga, þar sem er viti og býli fyrir opnu Atlantshafi.  Á leiðinni eru dásamlegir fossar, lækir, skriður, klettar, dalir og allt sem nöfnum tjáir að nefna.  Svo má komast sjóleiðina með flóabátnum Anný frá Neskaupsstað tvisvar í viku.

Brekkuþorp er snotur þéttbýliskjarni og þrátt fyrir fámenni er allt til staðar sem þarf.  Undirstaða mannlífsins er sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta. 

Áhugaverðir staðir

Þjónusta

Get Adobe Flash player