- Um Austurland
-Þjónustuleit
Neskaupstaður
Vefsíða: www.fjardabyggd.is/nordfjordur
Íbúafjöldi: 0
Íbúafjöldi: 0
Norðfjarðaflói er sunnan við Mjóafjörð og afmarkast af Nýpunni, hæsta standbergi í sjó fram á Íslandi og norðan að Gerpi við Vöðlavík.við Reyðarfjörð, hann er austasti oddi landsins. Norðfjörður er nyrsti fjörðurinn sem gengur inn úr Norðfjarðaflóa. Sunnan við eru Hellisfjörður og Viðfjörður.
Neskaupstaður fékk kaupstaðaréttindi 1929. Sjávarútvegur, fiskvinnsla og tengd þjónusta er aðalatvinnuvegur íbúanna. Síldarvinnslanhf rekur eitt stærsta fiskiðjuver í Evrópu og gerir út mörg þekkt aflaskip, t.d. Barða og Beitir. Á Neskaupstað er Fjórðungssjúkrahús Austurlands og Verkmenntaskóli Austurlands sem eru öflugir vinnustaðir. Þá er nokkur landbúnaður í Norfjarðasveit. Menningastarfsemi er mikil, Blús-,rokk-og djassklúbburinn Brján stendur fyrir uppákomum. Listiðnaður er töluverður með Gallerý Theu og Listasmiðjuna í fararbroddi. Íþróttalíf í blóma með blakdeild Þróttar, sund, golf og kajakklúbbinn Kaj sem er landsins elsti kajakklúbbur. Oddsskarð er miðstöð skíðaiðkunar í Fjarðabyggð og oft kallað Austfirsku Alparnir.
Norðfjarðafólkvangur sem friðlýstur var 1972 er yndisreitur Norðfjarðarbúa. Þar eru stuttar gönguleiðir og fræðslustígur með ábendingum um ýmis náttúrufyrirbæri. Það er ekki skortur á áhugaverðum göngu- og ferðaleiðum í Norðfirði og hefur Ferðafélag Fjarðamanna verið ötult í merkingu þeirra. Gerpissvæðið, eyðifirðirnir Hellis- og Viðfjörður, Vöðlavík og Sandvík eru skemmtileg svæði um söguslóðir tengdri sjósókn og byggð erlendra aðila.