- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Stöðvarfjörður

Vefsíða: http://www.fjardabyggd.is/Index/Stodvarfjordur
Íbúafjöldi: 735
Stöðvarfjörður

Stöðvarfjörður liggur milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur. Hann er grunnur og ekki mikið undirlendi sunnan megin. Inn af firðinum eru Jafnadalur og Stöðvardalur. Eftir Stöðvardal rennur samnefnd á út í fjörð og myndar svonefnda Öldu við sjóinn. Stöð hét kauptúnið áður og er snyrtilegt þorp.  Atvinna Stöðfirðinga er sjávarútvegur,blómlegur listiðnaður og ferðaþjónusta.

Út með firðinum norðanverðum, rétt við hin gömlu hreppamörk Stöðvarhrepps og Fáskrúðsfjarðarhrepps er einstakt náttúrufyrirbrigði sem nefnist Saxa. Í austlægum vindáttum dregur Saxa til sín þara, rekavið og annað lauslegt úr sjó, kurlar það í smátt og feykir hátt í loft upp. 

Fjallahringur Stöðvarfjarðar er fagur. Ofan kauptúnsins eru Steðji og Sauðabólstindur og sunnan við fjörðinn eru Súlurnar. Súlurnar eru blágrýtistindur sem klofinn er í tennt. Þangað er krefjandi gönguleið fyrir klifurkappa. Undir þeim eru Kambanesskriður sem áður fyrr voru verulegur farartálmi. Á Kambanesi er fagurt útivistasvæði.  Í Jafnadal er steinbogi í hlíðum Álftafells og einnig klettaþyrpingin Einbúinn.  Fjöllin eru auðkleif og sérlega góð gönguleið er upp á svonefndar Landabrúnir og Ólukku. Í þessum gömlu fallegu fjöllum eru fundnir dýrgripir þeir sem prýða Steinasafn Petru.

Picture Gallery

Stöðvarfjörður
Get Adobe Flash player