- Um Austurland
-Þjónustuleit
Veldu þjónustuflokka
Share

Vopnafjörður

Vefsíða: http://www.vopnafjardarhreppur.is/
Íbúafjöldi: 700
Vopnafjörður

Vopnafjörður liggur milli Héraðsflóa og Bakkaflóa, víðlendur og veðursæll. Þar þekkist hnúkaþeyr og mikill hiti við ákveðin skilyrði. Vopnafjarðarhérað skiptist í þrjá dali. Syðstur er Hofsdalur, í miðjunni Vesturárdalur og nyrstur er Selárdalur. Um þessa dali renna þrjár af þekktari laxveiðiám landsins, Hofsá, Selá og Vesturdalsá. Í Selárdal eru heitar uppsprettur og við þær sundlaug sem engan á sinn líka með útsýni yfir Selánna. Fyrir miðjum firði er Kolbeinstangi þar sem Vopnafjarðarbær stendur. Norðan tangans eru Nýpsfjörður og inn af honum Nýpslón.  Af Bustarfelli er einstakt útsýni yfir fjörðinn og einnig af Hellisheiðinni. 

Í kauptúninu Vopnafirði hefur verið verslunarstaður frá fornu fari. Þangað lágu líka leið skipa sem sigldu með fólk til Vesturheims. Nú er þar Vesturfarmiðstöð í menningarsetrinu Kaupvangi sem m.a. hjálpar til við að finna ættingja Vestur-Íslendinga ef unnt er. Í húsinu er einnig Múlastofa, sem er sýning um lím og list bræðranna Jóns og Jónasar frá Múla, svo og þekkingarnet Austurlands.  Sjávarútvegur og ferðaþjónusta eru aðalatvinnugreinar og er stærsti atvinnurekandinn HB Grandi hf með fiskiskipið Bretting.

Picture Gallery

Vopnafjörður Vopnafjörður Vopnafjörður
Get Adobe Flash player