Áhugavert á Austurlandi

 

Á Austurlandi er fjöldinn allur af vinsælum ferðamannastöðum og náttúran er engu lík. Landshlutinn er þekktur fyrir sína djúpu og hrikalegu firði, snarbrött fjöll, breiða og frjósama dali, víðáttumikla skóga og svarta eyðisanda. Hálendið er rétt "handan við hornið"  með sín tignarlegu fjöll, ótrúlega íshella, volgar náttúrulega baðlaugar og straumharðar jökulár.

Á Austurlandi er dýralífið einnig fjölbreytt og þú kemst varla nær lunda á Íslandi en í Hafnarhólmanum á Borgarfirði eystri, eða finnur betri aðstöðu til fuglaskoðunar en á Djúpavogi. Hreindýrin eru við vegkanntinn á veturnar og vorin en á sumrin er hægt að sjá þau á hálendinu.

Menningin blómstar í þorpum og bæjum, söfnin eru fjölbreytt; steinasöfn, sjóminjar, tækniminjar og menningarminjar svo fátt eitt sé nefnt.