Ferðatillögur


Austurland býður upp á allt milli himins og jarðar þegar kemur að áhugaverðum stöðum og ferðum. Hvort sem er friðsælar göngur upp á hæstu tinda, kajakaferðir eða spennandi söfn, þá er þetta allt til staðar á Austurlandi og meira til. Leyfðu okkur að koma með hugmyndir að frábærri ferð um Austurland fyrir alla fjölskylduna.
Austurland í Alvöru.

Dýr og fuglar

Austurland er kjörinn áningarstaður fyrir unnendur náttúru og dýralífs. Á nokkrum stöðum er m.a.s. nauðsynlegt að gjalda varhug við umferð gangandi vegfarenda af hreindýrastofni og selahausana uppúr haffletinum má telja úr farþegasætinu! Fjölmargar tegundir fugla eru á sveimi og góð aðstaða er á mörgum stöðum til fuglaskoðunar. Ber þar að nefna Borgarfjörð eystra og Djúpavog. Nánar má fræðast um fuglalíf á Austurlandi á www.birds.is og puffins.is

Göngum á Austurlandi

Austurland býður upp á fjölda góðra göngleiða.
Gönguleiðir á Austurlandi eru langar og stuttar, margbreytilegar yfir fjöll og fyrnindi, dali og heiðar og út með sjó.
Sumar af bestu gönguleiðum Íslands eru hér:
Víknaslóðir, Gerpissvæðið, Snæfell- Lónsöræfi til að nefna nokkra möguleika.
Hægt að fara í ferðir á eigin vegum eða  fara í skipulagðar ferðir á vegum ferðafélaga eða ferðaþjónustuaðila.
Skemmtilegar hugmyndir að dagsferðum: Þerribjörg, Dyrfjöll- Stórurð,  Fimm fjöll í Fjarðabyggð með Ferðafélagi Fjarðamanna, Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðabýlin sem Ferðafélag Fljótsdalshéraðs sér um og 7 Tindar Seyðisfjarðar skipulagt af Gönguklúbb Seyðisfjarðar.

Það er hægt að nálgast göngukort af öllu Austurlandi og nánari upplýsingar á upplýsingamiðstöðvum og hjá ferðaþjónustuaðilum.

Fjölskyldan á Austurlandi

Fjölskyldu skemmtun á Austurlandi er margbreytileg og þar má finna skemmtun fyrir alla aldurshópa. Við bjóðum þér í Alvöru ferðalag með fjölskylduna um Austurland.