Austast og yst í Mjóafirði
953
715, Mjóifjörður

Leiðin út á Dalatanga liggur eftir mjóum slóða sem fikrar sig út eftir Mjóafirði. Ekið er meðfram skriðum og hamrabrúnum, framhjá fossum og dalgilum. Er Dalatangi birtist, er því líkast sem sé maður staddur á eyju inn í landi.  Austar er ekki hægt að aka.  Við Dalatangavita opnast mikið útsýni til norðurs allt að Glettingi og inn í mynni Loðmundarfjarðar og Seyðisfjarðar. 
Vitarnir tveir sem standa á Dalatanga eiga sér merka sögu, sá eldri reistur að frumkvæði norska útgerðar- og athafnamannsins Ottos Wathne 1895. Hann er hlaðinn úr blágrýti og steinlím á milli. Yngri vitinn sem er enn í notkun, reistur 1908.   Á Dalatanga er fallegt býli og túnjaðrar býlisins nema við sjávarbrúnir. Við bæjarhúsin er skrúðgarður og gróðurhús.