Fjöll milli Borgarfjarðar eystri og Fljótsdalshéraðs
94
0,

Dyrfjöllin eru svipmikil fjöll milli Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar eystri; geysihá standbjörg beggja vegna skarðs sem jöklar hafa sorfið.  Nyrðra fjallið er hærra 1136 m. og er gengt Borgarfjarðamegin.  Hjarn er í botni Jökuldalsins sem liggur að Dyrfjöllum Borgarfjarðarmegin.  Héraðsmegin er Urðardalur. 
Fyrir  botni hans er stórgrýtt urð, Stórurð, sem er ein af allra fegurstu perlum Austurlands.  Efst í Urðardalnum eru björgin á hæð við háhýsi.
Um urðina eru tvær merktar gönguleiðir.  Önnur hefst við sæluhúsið á Vatnsskarði en hin neðar í fjallinu á leið upp Vatnsskarðið.  Sú ganga tekur um 2 klst. en góðan tíma þarf að gefa sér til að skoða sig um.