Austasti hluti landsins, enginn akvegur
92
740, Neskaupstað

Gerpir er austasti höfði landsins, snarbrattur og hömróttur sjávarmegin, 661 m. hár. Talið er að eitt elsta berg landsins, um 12 milljóna ára gamalt, sé að finna í Gerpi.
Gerpissvæðið er sannkölluð paradís fyrir göngufólk. Hefur Ferðafélag Fjarðamanna gefið út göngukort af svæðinu er fæst í upplýsingamiðstöðvum og verslunum víða í Fjarðabyggð. 
Ástæða er til að mæla með heimsókn í Gerpi við alla er áhuga hafa á útivist.