Um 15 mín. akstur frá Hallormsstað á vegi 931
931
701, Egilsstaðir

Hengifoss er í norðanverðum Fljótsdal , á móts við innri enda Lagarfljóts. Hann er næst-hæsti foss landsins, 128 m hár.  Í fossbrúninni eru blágrýtislög en undir þeim sandsteinn.Í berginu finnast steingerðir trjástofnar sem vitna um mun hlýrra loftslag, enda er sandsteinninn myndaður á tertíertíma. Nokkru neðan við Hengifoss er annar foss, Litlanesfoss, lukinn óvenju fallegri stuðlabergsumgjörð. Auðvelt er að ganga upp að Hengifossi frá þjóðveginum.