Í Njarðvík, á leið til Borgarfjarðar
94
0,

Innra Hvannagil er í Njarðvík við Borgarfjörð eystra og hægt er að aka alveg að gilinu. Frá bílastæði er gengið er um 100 m. upp með ánni, upp fyrir berggang sem byrgir útsýn inn í gilið. Þar opnast ævintýraheimur. Fallegar bergmyndanir eru í gilbörmunum og botn árinnar er mjög sérstakur á flúðum í gilinu.