Borgarfjörður eystri,
94
720, Borgarfjörður (eystri)

Kjarvalsstofa var sett á stofn í Félagsheimilinu Fjarðarborg sumarið 2002. Jóhannes Sveinsson Kjarval (1885-1972) var alinn upp í Geitavík á Borgarfirði og batt tryggð við fjörðinn.

Í Kjarvalsstofu er leitast við að kynna "Jóa í Geitavík" - eins og Kjarval var kallaður af sveitungunum - og sýna tengsl hans við heimabyggðina. Í Kjarvalsstofu eru einnig ljósmyndasýningar og þar er sérstakt barnahorn fyrir unga upprennandi listmálara.