Fjallið er á Vesturöræfum stutt frá Brúarjökli og Eyjabakka
F910
0,

Snæfell er 1833 m. hátt; hæsta fjall Íslands utan jökla. Rannsóknir benda til þess að fjallið kunni að vera virk eldstöð.  Snæfell er fremur auðvelt uppgöngu, er þá lagt upp frá sæluhúsi undir vesturhlíð þess eða frá Sandfelli að norðanverðu. Að fjallinu liggur tiltölulega góður sumarvegur og dugir dagurinn til að klífa það, sé lagt upp frá Egilsstöðum að morgni.