Bæir og þorp


Á Austurlandi eru margir bæir og þorp og hefur hvert byggðarlag sín sérkenni og sögu. Fengsæl fiskimiðin úti fyrir ströndinni löðuðu að sér sjómenn frá öðrum löndum sem þurftu vatn og vistir en skildu um leið eftir vott af framandi menningararfleifð.
Þau tengsl sem þannig mynduðust styrktust og efldust í áratugi. Stundum höfðu þau í för með sér atvinnutækifæri og það mynduðust hefðir. Spor þessa má gerla á mörgum stöðum. Norðmenn settu mark sitt einkum á Seyðisfjörð og Eskifjörð, en Frakkar skildu eftir greinileg spor á Fáskrúðsfirði.
Því eiga öll þéttbýlin við ströndina sér langa sögu og merka . Yngsti bærinn á Austurlandi er Egilsstaðir (1947) og er saga hans rétt að slíta barnsskónum.
Borgarfjörður eystri
720
134
Austurland
Borgarfjörður eystri er nyrsti fjörðurinn sem gengur inn í Austfjarðahálendið. Hann er um 4ja km. breiður og 5 km. langur og mjög opinn fyrir ...
Breiðdalsvík
760
197
Austurland
www.breiddalur.is
Breiðdalur er víðlend sveit miðað við aðra dali sem ganga inn af Austfjörðum. Breiðdalur skiptist með greinilegum mörkum í þrjá hluta, Norðurdal, ...
Djúpivogur
765
454
Austurland
Berufjörður er um 20 km langur og 2-5 km að breidd. Hann liggur milli Hamarsfjarðar að sunnan og Breiðdalsvík að norðan. Upp úr honum ganga ...
Egilsstaðir
700
2277
Austurland
Þéttbýlið Egilsstaðir var stofnað 1947 með lögum frá Alþingi. Nafnið dregur bærinn af stórbýlinu Egilsstöðum. Við stofnun þess voru 110 íbúar á ...
Eskifjörður
735
1087
Austurland
Eskifjörður er innfjörður úr Reyðarfirði norðanverðum. Sunnan megin við hann er Vöðlavík, með sendinni strönd og malarrifi.  Búið var meðfram ...
Fáskrúðsfjörður
750
667
Austurland
Fáskrúðsfjörður er vel í sveit settur í hjarta Austfjarða. Næstur honum til norðurs er Reyðarfjörður og skilur Vattarnes á milli með illræmdum ...
Fljótsdalshérað
701
3467
Austurland
Fljótsdalshérað er víðáttumikið láglendi sem markast af Héraðsflóa í norðri og Vatnajökli í suðri. Inn af láglendinu skerast Jökuldalur, Skriðdalur ...
Mjóifjörður
333
37
Austurland
Mjóifjörður er 18 km. langur og skerst inn í ströndina millum Norðfjarðarflóa og Seyðisfjarðar. Hann er einstaklega veðursæll, berjablár og girtum ...
Neskaupstaður
740
1451
Austurland
Norðfjarðaflói er sunnan við Mjóafjörð og afmarkast af Nípunni, hæsta standbergi í sjó fram á Íslandi, og Barðsneshorni að austanverðu.Norðfjörður er ...
Reyðarfjörður
730
1091
Austurland
Reyðarfjörður er lengstur Austfjarða um 30 km langur. Hann liggur milli Vaðlavíkur að norðan og Fáskrúðsfjarðar að sunnan. Undirlendi er ...
Seyðisfjörður
710
717
Austurland
www.sfk.is
"Fjarða best af Guði gjörður" orti skáldið Karl Finnbogason um Seyðisfjörð þar sem gömul timburhús kúra í skjóli hárra og formfagurra fjalla. Frá ...
Stöðvarfjörður
755
735
Austurland
Stöðvarfjörður liggur milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur. Fjörðurinn er grunnur og undirlendi takmarkað að sunnanverðu. Inn af firðinum skerast ...
Vopnafjörður
690
700
Austurland
Vopnafjörður liggur milli Héraðsflóa og Bakkaflóa, víðlendur og veðursæll. Vopnafjarðarhérað skiptist í þrjá dali. Syðstur er Hofsdalur, í miðjunni ...