Ferðamálasamtök Austurlands héldu aðalfund sinn og síðbúna góugleði á Eskifirði föstudaginn 30. apríl. Á aðalfundinum var Díana Mjöll Sveinssdóttir hjá Tanna Travel kosin formaður og mikil endurnýjun varð á stjórn samtakanna. Fjölmenni var á fundinum og gleðinni um kvöldið en afhenti Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri viðurkenningarnar Frumkvöðullinn og Klettinn sem um árabil hafa verið afhentar ferðaþjónustuaðilum á Austurlandi.
Að þessu sinni var það Ferðaþjónustan Álfheimar á Borgarfirði eystra, stofnuð 2008, sem hlaut Frumkvöðulinn fyrir uppbyggingu sína á heildstæðri ferðaþjónustu sem miðar að því að gestirnir dveljast nokkra daga á Borgarfirði og nágrenni og upplifi náttúru og mannlíf svæðisins. Það voru Arngrímur Viðar Ásgeirsson og Þórey Sigurðardóttir sem tóku við verðlaunum en þau eiga og reka fyrirtækið í samvinnu við foreldra Arngríms.
Kletturinn er veittur þeim einstaklingum sem um árabil hafa staðið í framlínu ferðaþjónustu á Austurlandi og hafa með ósérhlífni og eljusemi stuðlað að framgangi og vexti atvinnugreinarinnar um langt árabil. Kletturinn var veittur Farfuglaheimilinu í Húsey sem Örn Þorleifsson hefur rekið allt frá 1981 og jafnlengi eða lengur lagt sitt af mörkum við að glæða áhuga erlendra ferðamanna á Austurlandi. Örn tók við viðurkenningunni ásamt Laufeyju Ólafsdóttur en þau reka ferðaþjónustuna í Húsey þar sem meðal annars er hægt að stunda selaskoðun á hestbaki.
Markaðsstofa Austurlands óskar aðstandendum Álfheima og Ferðaþjónustunni á Húsey innilega til hamingu.
Um páskana verður mikil stemmning á skíðasvæðunum hér fyrir austan.
Í stafdal sem er aðeins í 15 fjarlægð frá Egilsstöðum er spáð lungamjúkum snjó og flottu færi. Nánari upplýsingar um skíðasvæðið í Stafdal má finna á
www.stafdalur.is
Í Oddskarði verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla aldurshópa og í Fjarðabyggð almennt stórskemmtileg dagskrá og tekið vel á móti gestum. Nánari upplýsingar um skíðasvæðið í Oddsskarði má finna á
www.oddsskard.is og á Facebook.
Upplýsingar um hina ýmsu viðburði um páskana ásamt upplýsingum um opnunartíma veitingastaða má finna hér undir "Viðburðir" og "Efst á baugi" á forsíðu east.is
Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráðherra veitti nýlega styrki að samtals upphæð 38,9 milljónir króna úr Þróunarsjóði Landsbankans og iðnaðarráðuneytisins.
Um er að ræða fyrri úthlutunina úr sjóðnum en alls bárust 113 umsóknir um styrki og ákveðið var að veita samtals 20 styrki að þessu sinni.
Þróunarsjóðurinn var stofnaður í tengslum við verkefnið Ísland allt árið. Markmið sjóðsins er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum. Samtals lögðu stofnendur 70 milljónir í þróunarsjóðinn, 40 milljónir frá Landsbanka og 30 frá iðnaðarráðuneyti sem úthlutað skildi í tveimur úthlutunum.
Finnur Sveinsson, formaður dómnefndar, segir um úthlutunina:
"Það er ljóst að mikil gróska er í ferðaþjónustunni og reyndist það erfitt verkefni fyrir dómnefnd að hafna mörgum afbragðsgóðum verkefnum. Það er klárlega hugur í fólki í ferðaþjónustunni að lengja ferðamannatímabilið og efla ferðaþjónustuna sem atvinnugrein".
Tanni ferðaþjónusta á Eskifirði hlaut tveggja milljóna króna styrk vegna "A Road Less Travelled -Meet the locals" til að skipuleggja og kynna vetrarferðir þar sem lögð er áhersla á að ferðamaðurinn upplifi íslenska menningu í hnotskurn með þátttöku í samfélaginu. Ferðamaðurinn kveður ekki sem gestur heldur sem hluti af samfélaginu.
Einnig hlaut Ferðaklasi á Austurlandi 1,5 milljóna króna styrk í tengslum við "Vöruþróun & vetrarupplifun á Austurlandi" til að vinna að því að fjölga vetrarferðamönnum á Austurland og lengja heimsóknir þeirra. Sérstaða Austurlands verður dregin fram og lögð áhersla á óspillta náttúru, norðurljós, krásir og menningu.
Ferðaþjónustan Álfheimar hlaut einnig 1,5 milljón króna styrk varðandi "Vellíðan í Álfheimum" til að skipuleggja og kynna ferðir. Um er að ræða ferðir þar sem gestir dvelja á Borgarfirði eystra og upplifa endurnýjun líkama og sálar í gegnum náttúru og þjónustu fagaðila.
Markaðsstofa Austurlands óskar styrkþegum til hamingju með styrkinn og þessi flottu verkefni.
Gistihúsið Egilsstaðir: Opið alla páskana
Kaffi Egilsstaðir: Opið alla páskana
Tærgesen: Opið alla páskana
Nesbær: Skírdag lokað, Páskadag lokað
Sumarlína: Föstudagurinn langi lokað, Páskadagur lokað
Álfacafe: Lokað yfir páskana
Kaffihúsið Eskifirði: Opið alla páskana
Bókakaffi: Lokað Skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum
Skaftfell: Lokað Skírdag, föstudaginn langa og páskadag
Hótel framtíð: Lokað yfir páskana
Kaffi steinn: Lokað yfir páskana
Egilssbúð: Lokað föstudaginn langa og páskadag
Fjarðahótel: Lokað yfir páskana
Segja má að norðurljós Jónínu G. Óskarsdóttur hafi náð heimsfægð nýverið, en Jónína hefur verið dugleg að ná einstökum myndum af norðurljósum í Fjarðabyggð. Mynd sem hún tók nýlega í Fáskrúðsfirði hefur vakið heimsathygli og erlendar fréttastofur falast eftir kaupum á myndinni auk hinnar þekktu stofnunnar NASA. Jónína hefur vart haft undan að svara fyrirspurnum og hefur hlotið verðskuldaða athygli.
Sjá má umrædda mynd á vef mbl;
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/03/10/augu_heimsins_a_mynd_fra_islandi/
IcelandExpress mun fljúga beint milli Kaupmannahafnar og Egilsstaða 3 ferðir í ágúst næstkomandi. Íbúar og ferðaþjónustuaðilar taka fluginu að sjálfsögðu fagnandi enda góður alþjóða flugvöllur á svæðinu og óþrjótandi möguleikar í afþreyingu og þjónustu. Við hlökkum til að nýta okkur þetta flug og bera út boðskapinn þannig að sem flestir sæki Austurland heim í beinu flugi!
www.icelandexpress.is
Kynningarfundur um VAKANN - Egilsstaðir 6. mars 2012
Nýtt gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu, sem ber heitið VAKINN, verður kynnt á fundi á Hótel Héraði þriðjudaginn 6. mars næstkomandi kl. 11-13:30.
Metnaðarfullt verkefni fyrir alla ferðaþjónustu
Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hafa um nokkurt skeið unnið að þróun þessa metnaðarfulla gæðakerfis fyrir íslenska ferðaþjónustu og eru miklar vonir bundnar við að VAKINN muni efla gæði og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og stuðningi, ásamt því að byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja.
Unnið í náinni samvinnu
VAKINN er afsprengi þróunarverkefnis sem iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands og þannig hefur skapast breið samstaða innan ferðaþjónustunnar um þennan mikilvæga málaflokk.
Nánari upplýsingar um VAKANN á:
www.vakinn.is og www.facebook.com/vakinn.is
Smellið hér fyrir skráningu á fundinn
Staðsetning og tími:
Egilsstaðir - Hótel Hérað
6. mars kl. 11-13:30
Dagskrá
11:00 Ávinningur af VAKANUM
Elías Bj. Gíslason, Ferðamálstofu
11:30 Umhverfiskerfi VAKANS
Hrafnhildur Tryggvadóttir, UMÍS
111:50 Gerð öryggisáætlana
Jónas Guðmundsson, ferðamálafræðingur og verkefnisstjóri hjá Landsbjörgu
12:10 Matarhlé - súpa og brauð
12:25 Áhættumat í ferðaþjónustu
Leifur Gústafsson, Vinnueftirlitinu
12:45 Rekstur og stjórnun
Kristbjörg Jónasdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
13:05 Stuðningur og fylgigögn VAKANS
Áslaug Briem, Ferðamálastofu
13:25 Mikilvægi gæða- og umhverfismála, innlegg heimamanns
Auður Anna Ingólfsdóttir, Icelandair Hótel Hérað
Tökum höndum saman og eflum gæði í íslenskri ferðaþjónustu!
Ferðamálastofa
Ferðamálastofa veitti á dögunum fjölmarga styrki til framkvæmda við ferðamannastaði og þónokkur góð verkefni á Austurlandi voru í þeim hópi. Þau verkefni eru eftirfarandi:
Breiðdalshreppur fékk styrk til að bæta aðgengi að Flögufossi.
Fjarðabyggð fékk styrk vegna skipulags og hönnunar áningarstaðar við Söxu Stöðvarfirði.
Fljótsdalshreppur fékk styrk varðandi skipulag, hönnun og framtíðarsýn varðandi bætt aðgengi ferðamanna að Hengifossi.
Gunnarsstofnun fékk styrk til að bæta gönguleiðir og upplýsingapósta við minjasvæði klaustursins.
Skrifstofa ferðamála á Seyðisfirði fékk styrk til að bæta göngubrýr á gönguleiðinni að Skálanesi.
Markaðsstofa óskar öllum þessum aðilum til hamingju og fagnar þessu framtaki og þessum verkefnum öllum.
Lagarfljótsormurinn sást synda í Jökulsá í Fljótsdal - eða hvað...
Forseti Íslands sæmdi á nýársdag ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeirra á meðal er Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi. Eymundur hlaut riddarakross fyrir frumkvæði á sviði búskaparhátta og matvælamenningar.
Fyrirtækið Móðir Jörð ehf í Vallanesi á Fljótsdalshéraði hefur um árabil verið leiðandi í framleiðslu og markaðssetningu lífrænt ræktaðra afurða. Hjá Móður Jörð er leitast við að framleiða hollar og bragðgóðar afurðir í sátt við náttúruna og á sanngjörnu verði fyrir neytendur. Sjá nánari upplýsingar á
www.vallanes.net
Heppinn vinningshafi hefur verið dregin út í happdrættinu "Jól á Austurlandi" og er plakat vinningshafans númer:
2435
Við biðjum handhafa þessa plakats vinsamlegast að hafa samband við Markaðsstofu Austurlands og vitja glæsilegra vinninga:
Flug með Flugfélagi Íslands milli Egilsstaða og Reykjavíkur.
Gisting fyrir tvo með morgunverði á Icelandairhotels í Reykjavík.
Bílaleigubíll í 2 sólarhringa.
Viðurkenninguna "Framúrskarandi ferðaþjónustubær 2011" hlautu nýverið þau Hulda og Gunnlaugur á
Gistihúsinu Egilsstöðum. Viðurkenninguna veitir Ferðaþjónusta bænda nokkrum aðilum ár hvert, og er hún veitt fyrir einstaka frammistöðu á árinu. Matið byggist á umsögnum gesta auk þess sem leitað var umsagna erlendra ferðaskrifstofa. Þá var einnnig horft til þeirra gæða sem staðurinn stendur fyrir að mati starfsfólks Ferðaþjónustu bænda.
Í frétt frá Ferðaþjónustu bænda kemur fram að margir mjög frambærilegir staðir starfi innan samtakanna og er það von starfsfólks skrifstofunnar að þessar viðurkenningar, sem ætlunin er að veita árlega, verði öðrum hvatning til þess að vanda til verka og skara fram úr á sínu sviði – hver á sinn einstaka hátt.
Ætlar þú að opna gistihús eða veitingastað? Byrja með hestaleigu eða gönguferðir? Nýr upplýsingabæklingur ferðamálastofu veitir greinargóðar upplýsingar um þau leyfi sem þarf að afla sér.
Upplýsingar fyrir nýja ferðaþjónustuaðila
Á "Dögum myrkurs" hélt Markaðsstofa Austurlands fræðslukvöld um himinhvolfið og var fókusinn á bæði stjörnur og norðurljós.
Snævarr Guðmundsson hélt skemmtilegt erindi um stjörnuskoðun, að hverju stjörnuáhugamenn þurfa að huga og hvar þeir geta leitað sér upplýsinga. Snævarr varpaði fram ýmsum ótrúlegum staðreyndum um himingeyminn, um fjarlægðir og stærðir, stjörnur, stjörnuþokur, vetrarbrautir og sólkerfi. Mjög upplýsandi erindi og skemmtilegt.
Jónína G. Óskarsdóttir greindi frá því hvernig best sé að ná góðum ljósmyndum af norðurljósum og næturhimni og sýndi úrval sitt af fallegum ljósmyndum teknum aðallega í Fáskrúðsfirði. Myndir Jónínu má sjá hér;
Flickr
Bæði erindin voru mjög fæðandi og luku upp ýmsum dyrum að undrum himinhvolfsins og er ábyggilegt að þátttakendur munu horfa til himins í auknum mæli í framtíðinni.
Dagar myrkurs verða haldnir hátíðlegir þann 3.-13. nóvember. Um er að ræða fjölbreytta menningarveislu með drauglegu ívafi og alls konar óvæntum uppákomum um allt Austurland.
Sjá dagskrá Daga myrkurs
hér
Inspired by Iceland herferðin hefur farið aftur af stað og í október og nóvember hvetjum við Íslendinga til að bjóða ferðamönnum í heimsókn. Eins og áður mun stærsti hluti átaksins eiga sér stað erlendis, en hugmyndin er að gefa erlendum gestum er sækja landið heim “íslenska” upplifun.
Hugmyndin er að fá Íslendinga til að opna dyr sínar þennan veturinn. Á sama hátt og Dalvíkingar bjóða heim á Fiskidaginn mikla reynum við að fá hundruð Íslendinga um allt land til að gera hið sama. Hægt er að bjóða heim í pönnukökukaffi, kenna að prjóna peysur, taka fólk með í uppáhalds gönguferðina eða bjóða heim í íslenskan mat. Töfrarnir við þessa hugmynd eru að hina sönnu íslensku gestrisni er að finna um allt land. Ef þú ert þenkjandi ferðamaður sem leitar eftir einstakri upplifun sem er ekki fyrir alla þá er tækifærið núna, ef þú vilt fyllast innblæstri af landi og þjóð.
Þetta er mjög einfalt í framkvæmd, heimamaður skráir heimboðið á heimasíðunni
www.inspiredbyiceland.is og tilgreinir þar fjölda gesta, tímasetningu og hvar á landinu heimboðið á sér stað auk þess að setja upplýsingar um það sem í boði er.
Ferðamaðurinn skrifar svo athugasemd við það heimboð sem hann vill þiggja og heimamaðurinn samþykkir, þannig kemst á beint samband milli heimamannsins og ferðamannsins.
Það er um að gera að nota hugmyndaflugið og láta sér detta eitthvað skemmtilegt í hug eða jafnvel leyfa ferðamönnum að taka þátt í daglegu lífi heimamanns.
Þegar hafa nokkur mjög skemmtileg heimboð á Austurlandi litið dagsins ljós!
Ferðamenn yfir 50 þúsund í september
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 51.576 erlendir ferðamenn frá landinu í september síðastliðnum eða tæplega 11 þúsund fleiri en í september á síðasta ári. Aukningin nemur 26,2% á milli ára. Um er að ræða lang fjölmennasta septembermánuð frá upphafi mælinga.
Einstök markaðssvæði
N-Ameríkönum fjölgar verulega á milli ára eða um 42,8%. Mið- og S-Evrópubúum fjölgar um 27,4%, Norðurlandabúum um 22,5% og ferðamönnum frá löndum sem eru flokkuð undir "Annað" um 20,9%. Bretum fjölgar talsvert minna eða um 11,8%.
Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Norðmenn ríflega þriðjungur ferðamanna
Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í september frá Bandaríkjunum (16,0%), Þýskalandi (11,4) og Noregi (10,2%). Ferðamenn frá Bretlandi (8,1%), Danmörku (7,6%) og Svíþjóð (6,6%) fylgdu þar á eftir. Samanlagt voru þessar sex þjóðir 60% ferðamanna í september.
Ferðamenn orðnir jafn margir og allt árið 2010
Það sem af er ári hafa 458.060 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða jafnmargir og allt árið 2010. Um 62 þúsund fleiri ferðamenn hafa komið til landsins frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra þegar brottfarir voru 385 þúsund talsins. Aukningin nemur 18,9% á milli ára. Ferðamönnum hefur fjölgað frá öllum mörkuðum. N-Ameríkanar hafa að miklu leyti borið uppi aukningu ársins en þeim hefur fjölgað um 50,3% frá því í fyrra, Norðurlandabúum hefur fjölgað um 16,7%, Mið- og S-Evrópubúum um 13,9%, Bretum um 9,1% og ferðamönnum frá öðrum löndum um 13,2%.
Ferðir Íslendinga utan
Brottförum Íslendinga í september hefur fjölgað um 10,8% frá því í fyrra, voru 30.809 í september í ár en 27.808 í fyrra. Frá áramótum hafa 260.201 þúsund Íslendingar farið utan, 19% fleiri en á sama tímabili árinu áður þegar brottfarir mældust tæplega 219 þúsund.
(Frétt frá Ferðamálastofu)
Dagana 13. – 15. september var ferðakaupstefnan Vest Norden haldin í Þórshöfn í Færeyjum. Markaðsstofa Austurlands sótti VestNorden fyrir hönd sinna félaga. Það er ljóst að Austurland hefur vakið athygli erlendra ferðasöluaðila því að öll viðtalsbil voru bókuð báða dagana. Mikið var spurt um afþreyingu, sérstaklega skipulagðar ferðir, hvort sem gangandi, ríðandi, róandi eða akandi og ljóst að það er mikill óplægður akur í dagferðum. Meðal annars var spurt um fuglaskoðun, hestaferðir, veiði í ám og vötnum. Allir bæklingar frá afþreyingarfyrirtækjum runnu út eins og heitar lummur .
Aldrei hefur verið meiri áhugi á Austurlandi á VestNorden og ljóst að þeir sem komu voru að leita nýrra áfangastaða og afþreyingar á Íslandi.
Væntum við þess að fá fleiri góða gesti í kjölfarið.
Hreindýraveiðum er nú lokið þetta haustið og náðist að veiða leyfilegan kvóta sem voru 1001 dýr þetta árið.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðunni
www.hreindyr.is
Breiðdalsá er nú um miðjan september komin í um 1350 laxa sem er vel yfir fyrra met sem er 1178 laxar frá því í fyrra og ekkert lát á veiðinni þar. Til dæmis veiddust 30 laxar í gær í Breiðdalsá og hann er ennþá að ganga, líkt og einnig á Jöklusvæðinu sem er komið í 525 laxa með Fögruhlíðará. Þar komu 12 laxar á land í gær þrátt fyrir yfirfall enda er veiðin nú að mestu í hliðarám sem renna í Jöklu ásamt Föruhlíðará sem rennur beint til sjávar og er ekki tengd heldur jökulvatninu.
Síðasta holl í Tungulæk fékk 21 sjóbirting á tveim dögum og upp í 84 cm bolta stærst. En það sem var merkilegast var að nokkrir þeirra fengust á þurrflugu og hefur það verið heldur betur fjör að ná honum þannig.
Það eru lausar 2-3 stangir í lokahollinu 26-29 september í Breiðdalsá, og einnig töluvert á Jöklusvæðinu til loka september. Tungulækur hefur lausa daga á bilinu 2-5 október og að lokum 15-20 október er veiði lýkur þar.
Auglýst eftir hugmyndum
Samtök ferðaþjónustunnar afhenda árlega nýsköpunarverðlaun samtakanna fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Kveðið er á um að heimilt sé að veita verðlaun vegna nýsköpunar allt að 300.000 krónum fyrir hvert verkefni.
Stjórn sjóðsins skipa þrír einstaklingar, Árni Gunnarsson formaður SAF, fulltrúi skipaður af stjórn SAF sem er í ár Bjarnheiður Hallsdóttir, Katla Travel, og fulltrúi Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála sem er Dr. Edward Huijbens. Með bréfi þessu eru félagsmenn beðnir að benda stjórn sjóðsins á athyglisverð verkefni.
Í stefnumótun SAF kemur m.a. fram að stefnt skuli að því að nýsköpun og fagmennska innan greinarinnar tryggi arðsemi allt árið enda byggi ferðaþjónustan á sterkri ímynd, gæðum, þekkingu og traustum innviðum. Bent er á verkefnið ÍSLAND – ALLT ÁRIÐ í þessu skyni. Auk þess segir í stefnu SAF að landið allt verði kynnt til eflingar ferðaþjónustu og að náttúra, mannlíf og menning landsins gegni lykilhlutverki. Hvatt er til aukinnar samvinnu innan greinarinnar til að styrkja enn frekar innviði og efla markaðssetningu landsins sem heildar. Stjórn sjóðsins mun m.a. taka tillit til þessara þátta þegar farið verður yfir tilnefningarnar. Samkvæmt samþykktunum um nýsköpunarverðlaunin er reynt að hafa afhendinguna sem næst stofndegi SAF sem er 11. nóvember en það verður auglýst síðar.
Vinsamlegast sendið ábendingar til skrifstofu SAF, Borgartúni 35, Reykjavík
Það er von sjóðsstjórnar og stjórnar SAF að félagsmenn taki virkan þátt í leit að verðugum verkefnum þar sem nýsköpun og öflug vöruþróun er grundvöllur allra framfara í íslenskri ferðaþjónustu.
Með bestu kveðju,
Árni Gunnarsson, formaður Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Markaðsátakið ÍSLAND – ALLT ÁRIÐ verður kynnt um allt land á næstu vikum og allir þeir sem vilja bjóða heilsársferðaþjónustu eru hvattir til að taka þátt í þessu verkefni.
Kynningarfundur verður á Hótel Héraði á Egilsstöðum þann 6. september næstkomandi kl. 12:00. Þar munu fjalla um verkefnið Árni Gunnarsson, formaður SAF, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, Einar Karl Haraldssonar frá iðnaðarráðuneyti og Inga Hlín Pálsdóttir frá Íslandsstofu.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í fundinum á info@saf.is
Nánari upplýsingar má nálgast á Markaðsstofu Austurlands, SAF Samtökum ferðaþjónustunnar eða á Íslandsstofu.
Almennt er hljóðið í ferðaþjónustuaðilum á Austurlandi gott, nú þegar halla fer að hausti. Góð nýting hefur verið á gistingu á Austurlandinu í sumar. Það er þó áberandi breyting frá fyrra ári hversu lítil lausatrafík er og virðist sem fleiri ferðamenn sé búnir að finna gistingu áður en þeir koma, eða haldi sig betur við fyrri áætlanir. Einnig vekur athygli hversu fáir Íslendingar hafa verið á ferðinni og er þar væntanlega um samspil tveggja þátta að ræða - óhagstæða veðurspá og hátt eldsneytisverð. Sérstaklega hefur Ísendinga verið sárt saknað á söfnum og veitingahúsum á svæðinu. Sumrinu er þó hvergi nærri lokið og vonandi að landinn láti sjá sig í meiri mæli ásamt því að sólin ylji okkur nú seinnihluta sumarsins. Nóg er við að vera og skemmtilegt samspil menningar og náttúru einstök upplifun á svæðinu. Í því samhengi má nefna viðburðina Ormsteiti - hátíð í Héraði, tónleika með KK í hinum ægifagra Loðmundarfirði, og uppskeruhátíðina Haustroða á Seyðisfirði.
Post – Hostel var opnað nýlega á Seyðisfirði. Post – Hostel er staðsett í gamla pósthúsinu gegnt ferjuhöfninni. Með tilkomu gistiheimilisins eru nú um 150 rúm í boði fyrir ferðamenn á Seyðisfirði. Þar að auki er stórt og gott tjaldsvæði í bænum og stórt
húsbílastæði með aðgengi að rafmagni og skolun fyrir ferðasalerni. Í þjónustuhúsi tjaldsvæðisins eru sturtur, þvottavél, eldunaraðstaða og setustofa.
Sjá nánar á www.visitseydisfjordur.com
Í Breiðdalsá hafa veiðst tvöfalt fleiri laxar en á sama tíma í fyrra. Sömu sögu er að segja af laxveiði í Jökulsá á Dal og í Selfljótinu fór lax að veiðast snemma á veiðitímanum. Flestir laxarnir eru meðalstórir, vel haldnir 2ja ára fiskar. Veiðileyfi í Selfljót eru seld í upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum.
Á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs eru eftirfarandi göngur í boði með landverði sumarið 2011:
Snæfell „Náttúra og nýting“
Dagleg fræðsluganga kl. 9:00-10:30. Mæting við Snæfellsskála.
Snæfell „Á refilstigum“
31. júlí og 20. ágúst. Mæting við Snæfellsskála kl. 11:00. Gangan tekur um 7 klst.
Gengið verður um byggðir útilegumanna undir Snæfelli og reynt að setja sig í spor ógæfumanna á fyrri öldum, sem höfðu í fá hús að venda önnur en óblíð öræfi landsins.
Gengið verður frá Snæfellsskála inn með Þjófadalsá á milli vesturhlíða Snæfells og Langahnjúks, inn í Þjófadali þar sem talið er að útilegumenn hafi hafist við. Loks verður gengið að mynni dalsins ofan Þóriseyja (Eyjabakka) og svo til baka í Snæfellsskála.
Snæfell „Gengið á toppinn“
23. júlí og 6. ágúst. Mæting við Snæfellsskála kl. 07:00. Gangan tekur um 8 klst.
Fræðsluganga á topp Snæfells, hæsta tind Íslands utan jökla, 1830 m.
Hvannalindir „Á slóðum Eyvindar og Höllu“ Fræðsluganga alla daga nema þriðjudaga kl. 11:00-11:45. Mæting við bílastæðið inn við rústir.
Hvannalindir „Liggur í Kreppu lítil rúst“
31. júlí og 27. ágúst. Mæting á bílaplaninu í Hvannalindum kl. 13:00
Gangan tekur um 5-6 klst. og er flestum fær.
Gengið verður eftir kreppuhrygg þar sem víðsýnt er til allra átta og farið til baka meðfram hraunjaðrinum við bakka Lindár. Gangan endar við rústir útilegumanna í Lindahrauni. Þess má geta að það tekur tæpa tvo tíma að keyra í Hvannalindir frá Möðrudal.
Þátttaka er gestum þjóðgarðsins að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar um göngurnar í Snæfellsstofu í s. 470 0840
Leikurinn "Vinalegasta viðmótið" fer vel af stað. Hugmyndin að baki herferðinni er að verðlauna það sem vel er gert í ferðaþjónustu um allt land og vekja sérstaka athygli á þeim stöðum með jákvæðum hætti. Markmiðið er einnig að herferðin sé hvatning til fólks í þjónustustörfum til að sýna jákvætt og vinalegt viðmót og leggja sig fram um að veita góða þjónustu í hvívetna.
Ferðamenn og aðrir viðskiptavinir geta látið vita af góðri þjónustu eða vinalegu viðmóti með því að hringja í þáttinn Virka morgna á Rás 2 eða skrifa ábendingar á Facebook-síðu átaksins – en einnig verður hægt að „verðlauna“ gott viðmót á stöðunum sjálfum með því að „gefa bros“.
Aldrei fleiri ferðamenn í apríl.
Gistinóttum fjölgar um 20% á Austurlandi á 1. ársfjórðungi!
Mikið að gera í Upplýsingamiðstöð Austurlands.
Söluskrifstofur Icelandair í kynnisferð.
Nestor seyðfirskra listmálara, Garðar Eymundsson, er um þessar mundir að leggja lokahönd á opnun myndlistarhúss
á Seyðisfirði ásamt nokkrum félögum sínum í listinni.
Lokkandi tilboð á skíði eystra
Á Stafdal við Seyðisfjörð og í Oddsskarði við Norðfjörð er að finna bestu skíðaaðstöðu á Austurlandi!