20.12.2011 -

Framúrskarandi ferðaþjónustbær

Viðurkenninguna "Framúrskarandi ferðaþjónustubær 2011" hlautu nýverið þau Hulda og Gunnlaugur á Gistihúsinu Egilsstöðum. Viðurkenninguna veitir Ferðaþjónusta bænda nokkrum aðilum ár hvert, og er hún  veitt fyrir einstaka frammistöðu á árinu. Matið byggist á umsögnum gesta auk þess sem leitað var umsagna erlendra ferðaskrifstofa. Þá var einnnig horft til þeirra gæða sem staðurinn stendur fyrir að mati starfsfólks Ferðaþjónustu bænda.

Í frétt frá Ferðaþjónustu bænda kemur fram að margir mjög frambærilegir staðir starfi innan samtakanna og er það von starfsfólks skrifstofunnar að þessar viðurkenningar, sem ætlunin er að veita árlega, verði öðrum hvatning til þess að vanda til verka og skara fram úr á sínu sviði – hver á sinn einstaka hátt.