Atvinnu- og nýsköpunarhelgi

11.05.2012 - 13.05.2012
Helgina 11. til 13. maí verður haldin Atvinnu- og nýsköpunarhelgi í Grunnskólanum á Reyðarfirði þar sem áhugasamir geta komið saman og unnið að því að gera hugmyndir sínar að veruleika.

Þátttakendur þá tækifæri til þess að byggja upp hugmyndir sínar með aðstoð fjölmargra sérfræðinga. Einnig verða flutt gagnleg erindi um uppbygginu hugmynda og stofnun fyrirtækja.

Viðburðurinn er fyrir alla þá sem hafa hugmyndir að nýrri vöru eða þjónustu, starfandi fyrirtæki og einnig þá sem langar að aðstoða aðra við uppbyggingu hugmynda.

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Innovit og Landsbankinn standa að viðburðinum í samstarfi við Fjarðabyggð og Þróunarfélag Austurlands. Þá styðja fjölmörg fyrirtæki af svæðinu rausnarlega við viðburðinn.

Athugið að það kostar ekkert að taka þátt og allir eru velkomnir! Skráing og nánari upplýsingar eru á www.anh.is