Skáskegg á VHS + CD - myndlistarnemar

21.02.2012 - 29.02.2012

Skáskegg á VHS + CD - myndlistarnemar fyrir austan

Í febrúar ár hvert flytja þriðja árs nemar í myndlist við Listaháskóla Íslands vinnu sína á Seyðisfjörð til að taka þátt í tveggja vikna námskeiði og setja upp sýningu. Námskeiðið er samstarf skólans, Skaftfells miðstöðvar myndlistar á Austurlandi, Dieter Roth Akademíunnar og Tækniminjasafns Austurlands. Þar fá nemendur 15 km langa vinnustofu sem er u.þ.b. 150.000 sinnum stærri en vinnuplássið þeirra í borginni og ekki spillir fyrir að kennarateymið eykst í tæplega 700 manns þar sem bæjarbúar taka nemendum opnum örmum og aðstoða eftir bestu getu.

Undir lok námskeiðs verður sýningin „Skáskegg á VHS + CD“ opnuð í Skaftfelli laugardaginn 25. febrúar kl. 16 þar sem afrakstur dvalarinnar verður kynntur almenningi.

Þeir listnemar sem taka þátt eru Ásgrímur Þórhallsson, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Claudia Hausfeld, Dóra Hrund Gísladóttir, Erik Hirt, Gintare Maciulskyté, Gunnar Jónsson, Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Katla Stefánsdóttir, Katrín Erna Gunnarsdóttir, Sigmann Þórðarson, Sigurður Þórir Ámundason, Steinunn Lilja Emilsdóttir og Viktor Pétur Hannesson.

Sýningarstjóri er Björn Roth.
Sýningin stendur til 6. maí 2012.