Flýtilyklar
Dagsferð á heiðarbýlin - Fljótsdalshérað

Dagsferð á heiðarbýlin: Þessi klassíska 2 skór
Gengið að tíu heiðarbýlum. Ekið á bílum á milli og gengið að hverju býli. Gangan í hvert skipti er ekki löng og því er þetta tilvalið fyrir alla fjölskylduna. Gott tækifæri til að fylla stimpilkort og taka þátt í skemmtilegum gönguleik Ferðafélagsins. Hjá hverju býli er hólkur sem inniheldur upplýsingar um býlið, ábúendur og sögur tengdar því ásamt gestabók og stimpli fyrir stimpilkortin.
Býlin sem verða heimsótt í þessari ferð eru: Ármótasel, Lindasel, Háreksstaðir, Fagrakinn, Kálffell, Brunahvammur, Rangalón, Grunnavatn, Heiðasel og endað í Sænautaseli.
Verð 8.000/7.000. Innifalið: Kvöldmatur í Sænautaseli, stimpilkort og fararstjórn. Tekið er á móti skráningum til 3. ágúst.
Fararstjórn: Þorvaldur P. Hjarðar.
Skrá mig í ferð hér.