Flýtilyklar
Kaffihúsið Eskifirði
Á kaffihúsinu Eskifirði er hlýlegt umhverfi og gott að gæða sér á mat sem eldaður er á staðnum. Bjóðum upp á léttar veitingar ásamt hamborgurum og pizzum. Kökuskápurinn okkar er alltaf fullur af gómsætum kræsingum, ostakökum, súkkulaðitertum og pæjum. Bakað af meisturum. Einnig erum við með kúluís í kramarhúsi, með rjóma og nammi. Vöfflur, volga súkkulaðiköku með ís og rjóma og allt þar á milli.
Á tillidögum bjóðum við upp á kökuhlaðborð, á föstudögum bjóðum við upp á pizzahlaðborð og svo hvenær sem er þegar kúnnanum hentar.
Við erum með ljúffengan hádegismat fjóra daga vikunnar, og hádegis pizzahlaðborð á föstudögum.
Opnunar tími
Mánudaga - Fimmtudaga og sunnudaga 12:00 - 22:00
Föstudaga - 12:00 - 01:00
Laugardaga - 12:00 - 01:00
Eldhúsið er opið til 21:00 alla daga
Ef þú átt von á hóp eða vilt fara í góðan hádegis mat endilega hafðu samband við okkur í síma 476-1150
Strandgata 10
Kaffihúsið Eskifirði - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Hótel
Hildibrand Hótel
Ferðaskrifstofur
Tanni ferðaþjónusta ehf.
Sundlaugar
Sundlaugin Neskaupstað
Vetrar afþreying
Skíðamiðstöð Austurlands, Oddsskarði
Gistiheimili
Skorrahestar
Gistiheimili
Ferðaþjónustan Mjóeyri
Aðrir
- Dalbraut 3a
- 735 Eskifjörður
- 476-1218
- Fjörður 4
- 710 Seyðisfjörður
- 899-2409
- Melagata 8
- 740 Neskaupstaður
- 470-1018, 863-3623
- Golfskálinn, Grænanesbökkum
- 740 Neskaupstaður
- 477-1165
- Kirkjufjara
- 740 Neskaupstaður
- 863-9939
- Strandgata 71a
- 735 Eskifjörður
- 892-4622
Náttúra
Hólmatindur
Stolt og prýði Eskfirðinga, Hólmatindur er 985 metra hár og gnæfir yfir firðinum gengt byggðinni. Það er krefjandi ganga upp á Hólmatind, en á tindinum geta göngugarpar kvittað fyrir komuna í gestabók.
Fjöllin fimm í Fjarðabyggð er verkefni sem skólabörn fitjuðu upp á og hefur náð vinsældum eftir að Ferðafélag Fjarðamanna hrinti því í framkvæmd. Göngugarpar kvitta í allar gestabækur á fimm tilteknum tindum og fá viðurkenningarskjal fyrir.
Náttúra
Völvuleiði
Efst í Hólmahálsinum, nokkru ofan við veginn er leiði völvunnar sem hefur verndað Reyðarfjörð og Eskifjörð frá utanaðkomandi árásum um aldir. Sagnir segja að svo lengi sem enn sé steini bætt í leiðið og því við haldið muni ekkert illt henda firðina. Þegar Tyrkir sigldu að Austfjarðaströndum gerði völvan sér lítið fyrir og huldi fjörðinn slíkri þoku að ræningjarnir sáu sitt óvænna og snéru við. Er völvuþokunni léttir er þó frábært útsýni út Reyðarfjörðinn.
Náttúra
Hólmanes
Hólmanes milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar var friðlýst sem fólkvangur og að hluta til sem friðland árið 1973. Þar er mikið fuglalíf og sérkennilegar bergmyndanir. Hólmanes er kjörið til útivistar, hvort sem er í klettum eða fjöru. Á leið út í nesið frá Eskifirði má líta útlínur hvals sem skólabörn mynduðu í fjörunni. Auðvelt aðgengi er að bjarginu og tilvalinn staður til fuglaskoðunar. Mikilfengleg urð verður á vegi göngugarpa Reyðafjarðarmegin.
Náttúra
Helgustaðanáma
Silfurbergsnámuna í Helgustaðalandi er að finna á leiðinni frá Eskifirði til Vöðlavíkur og liggur göngustígur upp að henni. Hún er ein frægasta silfurbergsnáma í heimi. Þar var silfurberg numið úr jörðu frá 17. öld fram á fyrri hluta 20. aldar.
Helgustaðanáman er nú friðlýst sem náttúruvætti.
Helgustaðanáma í Reyðarfirði er heimsþekkt sem fyrsti staðurinn þar sem mjög hreinir, stórir og gagnsæir kalsítkristallar fundust. Danski vísindamaðurinn Erasmus Bartholinus var fyrstur til að lýsa óvenjulegum eiginleikum silfurbergsins árið 1669. Vísindamenn hófu brátt að kenna þetta áður óþekkta efni við Ísland, á ensku sem Iceland crystal, en frá um 1780 varð heitið Iceland spar ráðandi.
Náttúra
Oddskarð
Það var ekki fyrr en árið 1949 að Norðfjörður komst fyrst í vegasamband við nágrannabyggðirnar. Leiðin lá um Oddsskarð, einn hæsta fjallveg á landinu, sem jafnan var erfiður yfirferðar vegna snjóþyngsla. Var því hafist handa við gerð jarðganga undir Oddsskarð á árunum 1974-1977. Göngin eru 626 m löng í 632 m h.y.s. Við Oddsskarð er miðstöð vetraríþrótta. Svæðið er uppspretta gönguleiða og skíðaleiða og réttnefnt Austfirsku Alparnir. Þar hafa verið haldnar Týrólahátíðar um páska síðustu ár. Margháttuð fjölskylduskemmtun er í boði á skíðasvæðinu.
Náttúra
Grænafell
Skjólsælt og vinalegt svæði undir kjarrivöxnum hlíðum Grænafells skammt vestan við þéttbýlið Reyðarfjörð. Auðfær, stikuð gönguleið liggur upp á fellið frá Fagradal. Á Grænafelli er lítið stöðuvatn. Síðan er unnt að fylgja stórfenglegri gönguleið meðfram undurfögru gili Geithúsaár. Stórir steinar í kjarrinu minna á álfaborgir en eru í raun framburður snjóflóða og skriða úr fjallinu. Áratugum saman var hefð að unglingar gróðusettu hver sitt tré í Grænafellinu og eru stór grenitré dæmi um það. Í Grænafelli var löngum samkomustaður Reyðfirðinga og háðu þeir íþróttamót sín þar. Nú er þetta vinsælasta göngusvæði þorpsbúa.
Á Fatmap kortinu hér að neðan er hægt að fá upplýsingar um gönguleiðana upp á Grænafell.
Náttúra
Mjóeyri
Síðasti aftökustaður á Austurlandi. Þar var Eiríkur nokkur Þorlákssonur tekinn af lífi 30. september 1786 fyrir morð á tveimur mönnum. Lík Eiríks var dysjað nærri aftökustaðnum. Á dys hans er að finna upplýsingaskilti. Fjaran er skemmtilegur leikvangur; ofan við hana er að finna vegalengdir til nokkura merkra staða á heimskortinu. Frá Mjóeyri er stutt í Helgustaðanámu. Hér er rekin myndarleg ferðaþjónusta sem býður upp á leiðsögn og allskyns ævintýri auk gistingar.
Gistiheimili
Ferðaþjónustan Mjóeyri
Upplýsingamiðstöðvar
Sjóminjasafn Austurlands
Söfn
Kirkju- og menningarmiðstöð Austurland
Söfn
Náttúrugripasafnið Neskaupstað
Söfn
Randulffs-sjóhús
Söfn
Safnahúsið Norðfirði
Aðrir
- Heiðarvegur 14a
- 730 Reyðarfjörður
- 474-1366
- Hæðargerði
- 730 Reyðarfjörður
- 470-9063
- Skorrastaður
- 740 Neskaupstaður
- 477-1736
- Egilsbraut 2
- 740 Neskaupstaður
- 470-9063, 860-4726.
- Egilsbraut 2
- 740 Neskaupstaður
- 4709000
- Lambeyrarbraut 5
- 735 Eskifjörður
- 476-1177
- Skólavegur 9
- 740 Neskaupstaður
- 477-1521
- Lambeyrarbraut 16
- 735 Eskifjörður
- 476-1586
Hótel
Hildibrand Hótel
Söfn
Randulffs-sjóhús
Kaffihús
Gistiheimili
Gistihúsið Tærgesen
Veitingahús
Nesbær ehf.
Gistiheimili
Farfuglaheimilið Reyðarfirði - Hjá Marlín
Gistiheimili
Ferðaþjónustan Mjóeyri
Aðrir
- Búðareyri 33
- 730 Reyðarfjörður
- 474-1147, 840-1785
- Egilsbraut 1
- 740 Neskaupstaður
- 477-1188
- Hafnarbraut 50
- 740 Neskaupstaður
- 477-1800, 861-4747
- Strandgata 86b
- 735 Eskifjörður
- 476-1150