Flýtilyklar
Hafrahvammagljúfur
Hafrahvammagljúfur á Austurlandi er með stærstu og stórfenglegustu gljúfrum landsins. Þar sem það er hæst er það um 200 metrar og er gljúfrið um 8 kílómetrar að lengd. Falleg merkt gönguleið er meðfram gljúfrinu og niður að Magnahelli. Það þarf fjórhjóladrifsbíl til að keyra að gönguleiðinni en hægt er að sjá hluta gljúfursins frá Kárahjúkum og dugar venjulegur fólksbíll til að komast þangað. Þetta gljúfur lætur engan ósnortinn.
701
910
Hafrahvammagljúfur - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands