Flýtilyklar
Gistihúsið Tærgesen
Gisti- og veitingahúsið Tærgesen er staðsett á besta stað á Reyðarfirði, í næsta nágrenni hafnarinnar. Hér má njóta góðra veitinga og notalegrar gistingar í virðulegum húsakynnum frá 1870 þar sem upprunalegur stíll hefur fengið að njóta sín. Á Tærgesen er opið frá morgni til kvölds allt árið um kring. Þar er í boði gott úrval veitinga; morgunverður, réttur dagsins í hádegi og á kvöldin, grillréttir, fjórðungsins frægustu pizzur og auðvitað réttir af matseðli. Á Tærgesen eru alls 18 vel búin eins- og tveggja manna herbergi í boði. Þá er nýlega búið að bæta við mótelbyggingu sem staðsett er við hliðina á Tærgesen. Þar eru 22 herbergi með öllum nútímaþægindum. Að lokum skal þess getið að Tærgesen leigir einnig sali undir samkvæmi.
Á www.taergesen.is er að finna allar frekari upplýsingar og matseðill.
Búðargata 4
470-5556
Gistihúsið Tærgesen - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Vetrarafþreying
Skíðamiðstöð Austurlands, Oddsskarði
Gistiheimili
Ferðaþjónustan Mjóeyri
Ferðaskrifstofur
Tanni ferðaþjónusta ehf.
Sundlaugar
Sundlaugar
Aðrir
- Melagata 8
- 740 Neskaupstaður
- 470-1018, 863-3623
- Strandgata 71a
- 735 Eskifjörður
- 892-4622
- Fjörður 4
- 710 Seyðisfjörður
- 899-2409
Hitt og þetta
Golfvöllurinn á Reyðarfirði
Golfvöllur Golfklúbbs Fjarðabyggðar, nefnist Kollur og er staðsettur í hlíðinni rétt innan við bæinn á Reyðarfirði. Völlurinn er 9 hola, par 70 og umvafinn fallegu umhverfi. Þá þykir völlurinn þægilegur yfirferðar en hann er nýr og því er enn verið að byggja hann upp.
Hitt og þetta
Golfvöllurinn Eskifirði
Golfvöllur hefur verið á Eskifirði síðan árið 1979 og ber hann heitið Byggðarholtsvöllur. Hann er níu hola og staðsettur sunnan Eskifjarðarár, innan byggðarinnar. Umhverfið er fjölbreytt og er mál kylfinga að hann sé einstaklega skemmtilegur viðureignar.
Fyrir börnin
Búðará
Búðará rennur þvert í gegnum byggðina á Reyðarfirði. Í miðbæ Reyðarfjarðar er að finna upphaf fallegrar gönguleiðar sem að liggur meðfram ánni í gegnum skógi vöxnum árbökkunum. Þegar komið er að Stríðsárasafninu er hægt að velja hvort gengið er eftir skógi vöxnum hálsinum austur af Stríðsárasafninu eða upp að Búðarárfossi.
Náttúra
Völvuleiði
Efst í Hólmahálsinum, nokkru ofan við veginn er leiði völvunnar sem hefur verndað Reyðarfjörð og Eskifjörð frá utanaðkomandi árásum um aldir. Sagnir segja að svo lengi sem enn sé steini bætt í leiðið og því við haldið muni ekkert illt henda firðina. Þegar Tyrkir sigldu að Austfjarðaströndum gerði völvan sér lítið fyrir og huldi fjörðinn slíkri þoku að ræningjarnir sáu sitt óvænna og snéru við. Er völvuþokunni léttir er þó frábært útsýni út Reyðarfjörðinn.
Náttúra
Grænafell
Skjólsælt og vinalegt svæði undir kjarrivöxnum hlíðum Grænafells skammt vestan við þéttbýlið Reyðarfjörð. Auðfær, stikuð gönguleið liggur upp á fellið frá Fagradal. Á Grænafelli er lítið stöðuvatn. Síðan er unnt að fylgja stórfenglegri gönguleið meðfram undurfögru gili Geithúsaár. Stórir steinar í kjarrinu minna á álfaborgir en eru í raun framburður snjóflóða og skriða úr fjallinu. Áratugum saman var hefð að unglingar gróðusettu hver sitt tré í Grænafellinu og eru stór grenitré dæmi um það. Í Grænafelli var löngum samkomustaður Reyðfirðinga og háðu þeir íþróttamót sín þar. Nú er þetta vinsælasta göngusvæði þorpsbúa.
Á Fatmap kortinu hér að neðan er hægt að fá upplýsingar um gönguleiðana upp á Grænafell.
Náttúra
Hólmanes
Hólmanes milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar var friðlýst sem fólkvangur og að hluta til sem friðland árið 1973. Þar er mikið fuglalíf og sérkennilegar bergmyndanir. Hólmanes er kjörið til útivistar, hvort sem er í klettum eða fjöru. Á leið út í nesið frá Eskifirði má líta útlínur hvals sem skólabörn mynduðu í fjörunni. Auðvelt aðgengi er að bjarginu og tilvalinn staður til fuglaskoðunar. Mikilfengleg urð verður á vegi göngugarpa Reyðafjarðarmegin.
Powered by Wikiloc
Saga og menning
Franski grafreiturinn
Nokkru fyrir utan Búðakauptún við Fáskrúðsfjörð er kirkjugarður frá tímum franskra sjómanna við Íslandsstrendur. Í garðinum eru þekktar 49 grafir franskra sjómanna.
Náttúra
Helgustaðanáma
Silfurbergsnámuna í Helgustaðalandi er að finna á leiðinni frá Eskifirði til Vöðlavíkur og liggur göngustígur upp að henni. Hún er ein frægasta silfurbergsnáma í heimi. Þar var silfurberg numið úr jörðu frá 17. öld fram á fyrri hluta 20. aldar.
Helgustaðanáman er nú friðlýst sem náttúruvætti.
Helgustaðanáma í Reyðarfirði er heimsþekkt sem fyrsti staðurinn þar sem mjög hreinir, stórir og gagnsæir kalsítkristallar fundust. Danski vísindamaðurinn Erasmus Bartholinus var fyrstur til að lýsa óvenjulegum eiginleikum silfurbergsins árið 1669. Vísindamenn hófu brátt að kenna þetta áður óþekkta efni við Ísland, á ensku sem Iceland crystal, en frá um 1780 varð heitið Iceland spar ráðandi.
Náttúra
Hólmatindur
Stolt og prýði Eskfirðinga, Hólmatindur er 985 metra hár og gnæfir yfir firðinum gengt byggðinni. Það er krefjandi ganga upp á Hólmatind, en á tindinum geta göngugarpar kvittað fyrir komuna í gestabók.
Fjöllin fimm í Fjarðabyggð er verkefni sem skólabörn fitjuðu upp á og hefur náð vinsældum eftir að Ferðafélag Fjarðamanna hrinti því í framkvæmd. Göngugarpar kvitta í allar gestabækur á fimm tilteknum tindum og fá viðurkenningarskjal fyrir.
Náttúra
Mjóeyri
Síðasti aftökustaður Austurlands. Þar var Eiríkur nokkur Þorlákssonur tekinn af lífi 30. september 1786 fyrir morð á tveimur mönnum. Lík Eiríks var dysjað nærri aftökustaðnum. Á dys hans er að finna upplýsingaskilti.
Fjaran er skemmtilegur leikvangur; ofan við hana er að finna vegalengdir til nokkura merkra staða á heimskortinu. Frá Mjóeyri er stutt í Helgustaðanámu. Hér er rekin myndarleg ferðaþjónusta sem býður upp á leiðsögn og allskyns ævintýri auk gistingar.
Náttúra
Einbúi í Jafnadal
Jafnadalur gengur inn úr Stöðvafirði að norðan. Um dalinn liggur gönguleið yfir Stöðvarskarð. Innst í Jafnadal er að finna klettaborgina Einbúa, sem samanstendur af nokkrum sérstæðum stórum steinum sem teygja sig stakir upp úr flatendinu umhverfis. Í Jafnadal er einnig að finna allstóran steinboga, er gnæfir austan í Álftafelli og er um 6m. að ummáli. Svæðið er áhugavert og fallið til lengri og skemmri gönguferða.
Söfn
Íslenska Stríðsárasafnið
Söfn
Norðurljósahús Íslands
Upplýsingamiðstöðvar
Sjóminjasafn Austurlands
Söfn
Randulffs-sjóhús
Gistiheimili
Ferðaþjónustan Mjóeyri
Söfn
Fransmenn á Íslandi
Söfn
Kirkju- og menningarmiðstöð Austurland
Aðrir
- Lambeyrarbraut 5
- 735 Eskifjörður
- 476-1177
Gistiheimili
Ferðaþjónustan Mjóeyri
Söfn
Randulffs-sjóhús
Gistiheimili
Hjá Marlín
Söfn
Fransmenn á Íslandi
Hótel
Fosshótel Austfirðir
Gistiheimili
Gistiheimilið Kaffihúsið
Aðrir
- Búðavegur 59
- 750 Fáskrúðsfjörður
- 475-1575
- Búðareyri 33
- 730 Reyðarfjörður
- 474-1147, 840-1785
- Hafnargötu 1
- 730 Reyðarfjörður