Flýtilyklar
Icelandair hótel Hérað
Icelandair hótel Hérað á Egilsstöðum er glæsilegt hótel sem mætir væntingum gesta í hvívetna. Á hótelinu eru 60 herbergi og mjög góð aðstaða til ráðstefnu- og fundarhalda.
Á veitingahúsi hótelsins er boðið upp á fjölbreyttan matseðil og þar er notalegur bar með verönd þar sem gott er að setjast niður og slaka á. Stutt er í alla þjónustu en um leið er sveitakyrrðin ekki nema steinsnar í burtu. Icelandair hótel Hérað er staðsett í hjarta Austurlands, þar sem leiðir liggja niður á firði, inn í Hallormsstað og inn á hálendið. Náttúran á svæðinu er stórbrotin þar sem er að finna margar fallegar gönguleiðir og óþrjótandi afþreyingarmöguleika
- 60 hótelherbergi
- Fyrsta flokks veitingastaður
- Hráefni úr héraði t.d hreindýr
- 24 stunda herbergisþjónusta
- Frábær fundaraðstaða
- Frítt internet
- Bar með útsýnissvölum
- Brunch á sunnudögum
- Næg bílastæði fyrir utan hótelið
Miðvangur 5-7

Sumarið er okkar - Sumartilboð
Icelandair hótel bjóða frábær sumartilboð á Akureyri, Egilsstöðum, Flúðum, Borgarnesi og við Mývatn og einnig á Hilton Reykjavík Nordica.
Uppgötvum okkar eigið Ísland og njótum þess að ferðast innanlands. Hvernig er Ísland með þínum augum?
Verð fyrir tvo: 19.900 kr. í eina nótt ásamt morgunverði.
Verð: 14.900 kr. nóttin ásamt morgunverði séu bókaðar fleiri en ein nótt.*
*Næturnar þurfa ekki að vera á sama hóteli en verða að vera í dagaröð.
*Gildir ekki með öðrum tilboðum nema Sumartilboði Hótel Eddu.
Ertu að skipuleggja ferðalag hringinn í kringum landið?
Bókaðu gistingu hjá Icelandair hótelum fyrir 14.900 kr. nóttina, með morgunverði, fyrir tvær eða fleiri nætur.
*Næturnar þurfa ekki að vera á sama hóteli en verða að vera í dagaröð.
Til að bóka gistingu á fleiri en einu hóteli vinsamlegast hringið í okkur í síma 444-4570.
Utan hefðbundins skrifstofutíma vinsamlegast hringið beint í hótelið:
Akureyri: 518-1000 | Mývatn: 592-2000 | Hérað: 471-1500 | Hilton Reykjavík: 444-5000 | Flúðir: 486-6630 | Hamar: 433-6600
Börnin gista frítt í allt sumar!
Við bjóðum fjölskyldur velkomnar að gista hjá okkur á betri kjörum.
Hægt er að bóka fjölskylduherbergi, fá aukarúm eða dýnur inn á herbergin og auðvitað velkomið fyrir þau yngstu að sofa upp í.
Uppfærsla í fjölskylduherbergi, aukarúm, dýnur í herbergin og morgunverður verður ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri í sumar svo lengi sem bókunarstaða leyfir.
Vinsamlegast athugið að takmarkað magn er af fjölskylduherbergjum og aukarúmum og gildir reglan fyrstur bókar - fyrstur fær.
Engin aukarúm né fjölskyldurherbergi eru á Flúðum.
Engin fjölskyldurherbergi eru á Héraði og hægt að koma fyrir einni dýnu að hámarki í hvert herbergi.
Fjölskyldur sem þurfa aukaherbergi fá nóttina á 14.900 kr. fyrir hvert herbergi
Séu börnin eldri en 12 ára eða aukarúmin öll frátekin, bjóðum við fjölskyldum að fá auka herbergi og þá lækkar verðið niður í 14.900 á herbergi.
Verð fyrir tvö herbergi ásamt glæsilegum morgunverði fyrir alla fjölskylduna: 29.800 kr.
Til að bóka aukarúm fyrir börnin eða auka herbergi vinsamlegast hringið í okkur í síma 444-4570.
Utan hefðbundins skrifstofutíma vinsamlegast hringið beint í hótelið:
Akureyri: 518-1000 | Mývatn: 592-2000 | Hérað: 471-1500 | Hilton Reykjavík: 444-5000 | Flúðir: 486-6630 | Hamar: 433-6600
Icelandair hótel Hérað - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands