Flýtilyklar
Ferðaþjónustan Síreksstöðum
Síreksstaðir eru í Sunnudal, litlum og friðsællum dal inn af Hofsárdal. í Vopnafirði. Þar er frístandandi gistihús og tvö 32 ferm sumarhús í boði fyrir ferðamenn er rúma 4 manns hvort, hlýleg og vel búin öllum þægindum.
Verönd með gasgrilli eru við hvort hús og heitur pottur við annað húsið. Í gistihúsinu eru 7 tveggja manna herbergi og eitt þriggja manna svefnherbergi með koju og eins manns rúmi. Setustofa með sjónvarpi. Uppbúin rúm eða svefpokapláss. WC og sturtur til sameiginlegra afnota í miðrými hússins. Handlaugar eru í hverju herbergi. Morgunverður borin fram í veitingarstaðnum sem er áfastur við gistihúsið. Hentugt fyrir alla þá er áhuga hafa fyrir að komast út og upplifa náttúruna og kyrrðina.
Á Síreksstöðum er einnig rekinn veitingastaðurinn "Hjá okkur" sem býður upp á fjölbreyttan og góðan mat. Leitast er við að vera með sem mest af hráefni frá búinu og nágrenni. Veitingarstaðurinn er opin 1. júní til 1. september, frá kl. 18 til 21.
Á Síreksstöðum er stundaður hefðbundinn búskapur og njóta gestir stúkusæta sem áhorfendur að bússtörfum. Hér eru griðavé til að upplifa kyrrðina og rólegheitin, hlusta á fuglasönginn og skoða plöntulífið. Staðurinn er fjölskylduvænn og dvöl í sveitasælunni er vel þess virði að upplifa.
Afþreying:
Leiktæki, rólur, rennibraut, sandkassi.
Minjasafnið Bustarfelli og "Hjáleigan" kaffihús 8km. Gönguleiðir í nágrenninu. Veiði í ám og vötnum. Á slóðum Vopnfirðingasögu með leiðsögn.
Nánari upplýsingar á www.sireksstadir.is
Síreksstaðir






Þriggja nátta tilboð á Síreksstöðum - Sumarhús
Geirland (hús m.potti) fyrir 2 pers.
1.nótt 20.000kr – 2.nótt 17.000kr – 3.nótt 14.450kr
Vindheimur fyrir 2 pers.
1.nótt 15.000kr – 2.nótt 12.750kr – 3.nótt 10.800kr
Aukarúm í hús 2.500kr á pers.
Einnig er tilboð á tveggja manna herbergi með morgunmat.
1.nótt 13.900kr – 2.nótt 11.100kr – 2.nótt 8.800kr
3ja manna herbergi með morgunmat.
1.nótt 17.500kr – 2.nótt 14.000kr – 3.nótt 11.200kr
Eins manns herbergi með morgunmat.
1.nótt 7.500kr – 2.nótt 6.000kr – 3.nótt 4.800kr
Morgunmatur 1.700kr.
Bókast eingöngu beint, sirek@simnet.is eða 848-2174

Þriggja nátta tilboð á Síreksstöðum - Gistiheimili
Tveggja manna herbergi með morgunmat:
1.nótt 13.900kr – 2.nótt 11.100kr – 2.nótt 8.800kr
3ja manna herbergi með morgunmat.
1.nótt 17.500kr – 2.nótt 14.000kr – 3.nótt 11.200kr
Eins manns herbergi með morgunmat.
1.nótt 7.500kr – 2.nótt 6.000kr – 3.nótt 4.800kr
Einnig tilboð á sumarhúsagistingu:
Geirland (hús m.potti) fyrir 2 pers.
1.nótt 20.000kr – 2.nótt 17.000kr – 3.nótt 14.450kr
Vindheimur fyrir 2 pers.
1.nótt 15.000kr – 2.nótt 12.750kr – 3.nótt 10.800kr
Aukarúm í hús 2.500kr á pers.
Morgunmatur 1.700kr.
Bókast eingöngu beint, sirek@simnet.is eða 848-2174
Ferðaþjónustan Síreksstöðum - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands