Flýtilyklar
- Austurland +
-
Gisting
- Hótel
- Gistiheimili
- Fjallaskálar
- Farfuglaheimili
- Bændagisting
- Sumarhús
- Einkagisting
- Tjaldsvæði
- Íbúðir
-
Tjaldsvæði
- Hótel
- Gistiheimili
- Fjallaskálar
- Farfuglaheimili
- Bændagisting
- Sumarhús
- Einkagisting
- Tjaldsvæði
- Íbúðir
-
Camp Egilsstaðir
- Hótel
- Gistiheimili
- Fjallaskálar
- Farfuglaheimili
- Bændagisting
- Sumarhús
- Einkagisting
- Tjaldsvæði
- Íbúðir
Camp Egilsstaðir
Camp Egilsstadir er opið allt árið með aðstöðu opna allan sólarhringinn. Camp Egilsstadir er miðsvæðis í bænum, í klettaskjóli við Kaupvang, steinsnar frá söluskála N1, versluninni Nettó og öðrum helstu verslunar- og þjónustuaðilum.
Egilsstaðir er af mörgum kallaðir höfuðstaðir Austurlands en Fljótsdalshérað er annað stærsta hérað Austurlands með um 4.600 íbúa. Þar af búa um 2.300 á Egilsstöðum og um 450 manns í Fellabæ sem gerir þetta svæði að stærsta þéttbýliskjarna á Austurlandi. Mikið úrval verslana er á svæðinu og mikið af þjónustufyrirtækjum sem þjónusta jafnt ferðamenn sem íbúa. Mikil náttúrufegurð er á Egilsstöðum og í næsta nágrenni sem gerir Egilsstaði að tilvöldum stað til að gista á og ferðast þaðan í dagsferðir til annarra staða á Austurlandi. Perlur Fljótsdalshéraðs eru skemmtilegar gönguleiðiar á svæðinu og ættu allir að finna göngu við sitt hæfi. Hægt er að kaupa bæklinga með gönguleiðunum gegn vægu gjaldi.
Öll helsta aðstaða er fyrir hendi á tjaldsvæðinu allan sólarhringin: WC, sturtur, þvottavél, þurkari, rafmagn og leiktæki fyrir born. Á svæðinu eru útiborð og bekkir ásamt aðstöðu til að vaska upp, inni og úti. Þráðlaust net er á tjaldsvæðinu. Í þjónustuhúsi tjaldsvæðisins er að finna Egilsstaðastofu Visitor Center. Þar er hægt að kaupa kaffi, te, safa og gos. Einnig eru veittar upplýsingar þar til gesta allt árið.
Opnunartími
Opnunartími:
Allan sólarhringinn allan ársins hring.
Kaupvangur 17
Camp Egilsstaðir - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Gönguferðir
Wildboys.is
Skíði
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstadir
Dagsferðir
East Highlanders
Sundlaugar
Sundlaugin Egilsstöðum
Veitingahús
Vök Baths
Vetrarafþreying
Skíðasvæðið Stafdal
Hótel
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstadir
Gistiheimili
Vallanes
Sumarhús
Móðir jörð
Fjallaskálar
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
Sumarhús
Hestaleigan Stóra-Sandfelli
Ferðaskrifstofur
Travel East Iceland
Heilsurækt og Spa
Baðhúsið – SPA
Svefnpokagisting
Ferðaþjónustan Sandfellsskógi
Vetrarafþreying
Jeeptours ehf.
Aðrir
- Kringlan 7
- 103 Reykjavík
- 470-5470
- Ekkjufell - Fellabær
- 701 Egilsstaðir
- 471-1113
- Dalbrún 12
- 700 Egilsstaðir
- 867-0528
- Miðvangur 1
- 700 Egilsstaðir
- 8993826
Náttúra
Vallanes
Vallanes er kirkjustaður frá fornu fari og margir þjóðþekktir einstaklingar hafa gengið þar um götu. Þar er stunduð lífræn ræktun undir vörumerkinu "Móðir Jörð". Grænmeti og korn er ræktað og úr því unnin matvæli og hvers kyns olíur.
Í jaðri jarðarinnar eru "Iðavellir" sem státa af góðri aðstöðu til hestamennsku og litlu félagsheimili samnefndu.
Náttúra
Eyjólfsstaðaskógur
Eyjólfsstaðaskógar er í eigu Skógræktarfélag Austurlands og er rúmlega 130 ha. að stærð. Að stofni til er þetta villtur birkiskógur en einnig er þar erlendar tegundir að finna. Náttúrufegurð er mikil í skóginum; þar eru tveir fossar og manngengt bak við annan þeirra. Í Eyjólfsstaðaskógi eru fjölbreyttar gönguleiðir og einnig er þar notalegur áningarstaður í skjólsælu birkirjóðri. Skógræktarfélag Austurlands hefur gefið út gönguleiðakort um svæðið.
Náttúra
Grænafell
Skjólsælt og vinalegt svæði undir kjarrivöxnum hlíðum Grænafells skammt vestan við þéttbýlið Reyðarfjörð. Auðfær, stikuð gönguleið liggur upp á fellið frá Fagradal. Á Grænafelli er lítið stöðuvatn. Síðan er unnt að fylgja stórfenglegri gönguleið meðfram undurfögru gili Geithúsaár. Stórir steinar í kjarrinu minna á álfaborgir en eru í raun framburður snjóflóða og skriða úr fjallinu. Áratugum saman var hefð að unglingar gróðusettu hver sitt tré í Grænafellinu og eru stór grenitré dæmi um það. Í Grænafelli var löngum samkomustaður Reyðfirðinga og háðu þeir íþróttamót sín þar. Nú er þetta vinsælasta göngusvæði þorpsbúa.
Á Fatmap kortinu hér að neðan er hægt að fá upplýsingar um gönguleiðana upp á Grænafell.
Náttúra
Rauðshaugur
Rauðshaugur er áberandi brjóstlaga hóll upp af Höfða og sést víða af Héraði. Þjóðsaga segir hólinn vera grafhaug Rauðs bónda á Ketilsstöðum, sem nefndur er Ásrauður í fornsögum, og sést þaðan til tveggja annarra frægra hauga, Bessahaugs í Fljótsdal og Ormarshaugs í Fellum.
Sagan segir að Rauður hafi verið heygður með öll sín auðæfi og að fólk hafi reynt að grafa í hauginn en orðið frá að hverfa þar sem bærinn á Ketilsstöðum virtist standa í ljósum logum. Frábært útsýni yfir Fljótsdalshérað.
Gengið frá skilti við Fagradalsveg ( N 6 5 ° 1 4 . 5 9 0 -W 1 4 ° 2 1 . 1 5 6 ) eftir vegaslóða áleiðis inn Egilsstaðahálsinn.
Rauðshaugur er hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs.
GPS : N65°12.77-W14°23.01
Náttúra
Höttur
Höttur (Hátúnahöttur) er tignarlegt fjall, sem rís upp af fjallshryggnum milli AusturValla og Fagradals, og er af mörgum talinn bæjarfjall Egilsstaða.
Gengið frá skilti við þjóðveg 1 austan (utan) við Gilsá (N65°08,172-W14°31.133) í átt að Grjótánni aðeins utan við Víðihjalla og upp með ánni. Áfram upp á Hattarhólana og síðan beygt inn eftir og upp á Höttinn (1106 m).
Höttur er hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs.
GPS : N65°07.63-W14°27.25
Náttúra
Heiðarendi
Ekið upp fyrir Heiðarsel og beygt inn á slóð til vinstri áður en komið er að Nátthaga. Gengið frá skilti sem er við gamla veginn fyrir ofan Nátthaga. Gengið upp á brún og síðan út eftir til hægri uns komið er að hólknum þar sem er gestabók og stimpill. Gaman er að ganga út Heiðarendann, niður og inn með honum til baka eftir gamla veginum.
Hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs
GPS : N65°23.085-W14°33.819
Náttúra
Gufufoss
Gufufoss er fallegur foss innarlega í Seyðisfirði. Nafnið er tilkomið vegna mikillar gufu sem fossinn gefur frá sér og sveipar hann ákveðinni dulúð. Vegurinn yfir Fjarðaheiði liggur rétt við fossinn og er aðgengi að honum mjög gott.
Saga og menning
Nielsenshús
Nielsenshús var fyrsta íbúðarhús sem reist var á Egilsstöðum árið 1944 af hinum danska Oswald Nielsen. Nú er þar rekið snyrtilegt og fallegur veitingastaður, Nielsen restaurant. Hægt er að sitja út á verönd í góðu veðri og upplifa danska sumarstemmingu á Egilsstöðum.
Náttúra
Rangárhnjúkur
Gengið frá skilti við hliðið að Fjallsseli og genginn vegarslóði fyrir ofan bæinn. Þegar upp er komið er farið út af veginum og gengið út á Rangárhnjúkinn þar sem hólkurinn með gestabók og stimpli er. Gaman er að fara niður hjá Egilsseli og ganga síðan veginn til baka í Fjallssel. Er þá gengið framhjá Dansgjá, sem er sérkennileg gjá eða sprunga í gegnum klettaás, vestur af Staffellsbjörgum rétt við veginn.
Rangárhnjúkur er hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs.
GPS : N65°19.410-W14°35.498
Saga og menning
Miðhús
Miðhús voru áður í þjóðbraut og þar var einn fyrsti áningarstaður ferðamanna á Héraði.Verslunarleið Héraðsmanna bæði á Seyðisfjörð og Eskifjörð lá þar um garð. Á Miðhúsum hefur verið rekið gallerí og lístasmiðjan Eik s/f síðan 1975. Þar er unnið úr íslensku hráefni. Þar var skorin út eftirlíkingin af Valþjófsstaðahurðinni sem nú er fyrir kirkjunni í Fljótsdal. Sigfús Sigfússon þjóðsagnaritari kenndi sig við Eyvindará, hið næsta Miðhúsum, og er minnisvarða um hann að finna niður við þjóðveg 93. Á Miðhúsum fannst gangsilfursjóður sem talin er frá víkingaöld 1985 og þótti merkur forleifafundur.
Náttúra
Valtýshellir
Gengið frá skilti við þjóðveg 1 austan (utan) við Gilsá (N65°08,172-W14°31.133). Farið er framhjá rústum Hátúna en þar var myndarbýli í árdaga Íslandsbyggðar og er sagt að þar hafi verið 18 hurðir á járnum. Sjást þar enn merki um hlaðna grjótgarða. Á 19. öld fannst þar fornt sverð, sem var brætt upp og úr því smíðaðar skaflaskeifur og aðrir þarfir hlutir. Áfram er gengið og komið að sléttum grasvelli, sem kallast Kálfavellir.
Valtýshellir er lítill skúti innan við urðarrana skammt innan og norðan af Hjálpleysuvatni. Gangan í heild er um 8,4 km. Hólkurinn með gestabók og stimpli er rétt innan við skútann.
Valtýshellir er hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs.
GPS : N65°06.410-W14°28.517
Náttúra
Hrafnafell
Ekið Fjallsselsveg upp á hæsta ás suðvestan við Hafrafell. Gengið frá skilti við veg að fjarskiptamöstrum á Hrafnafelli þar sem hólkinn með gestabók og stimpli er að finna. Upplagt að koma við í Hrafnafellsrétt (N65°18.02-W14°29.23), sem er sérstæð, hlaðin grjótrétt milli kletta skammt austan vegar. Gaman er að ganga síðan út af Hrafnafellinu og inn með því að austanverðu og koma við í Kvíahelli (N65°18,359-W14°29,063).
Ef farinn er hringurinn er hann 5.8 km og rauð leið.
Hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs
GPS : N65°18,304-W14°29,098
Náttúra
Lagarfljót og Lögurinn
Lagarfljót er eitt mesta vatnsfall á Austurlandi. Það er um 140 km. frá upptökum Jökulsár á Fljótsdal til ósa. Efri hluti fljótsins myndar langt stöðuvatn, Löginn, sem er þriðja stærsta stöðuvatn á landinu, um 53 ferkílómetrar. Vatnið er mjög djúpt, um 112 m. þar sem dýpst er, og nær botn þess um 90 m undir sjávarmál. Samkvæmt gamalli þjóðtrú er talið að skrímsli hafist við í Lagarfljóti, Lagarfljótsormurinn. Stóð mönnum mikill stuggur af ormi þessum fyrr á öldum og þótti það boða ill tíðindi ef hann sást skjóta kryppum upp úr vatninu. Hin síðari ár hefur minna borið á honum en þó eru þess dæmi að nýlega hafi náðst sæmilega skýrar ljósmyndir af honum.
Náttúra
Eyvindará
Eyvindará er mikið og fagurt vatnsfall sem sprettur af þverám er falla frá Fagradal,Gagnheiði og Fjarðarheiði. Áin fellur í bugðum um láglendi Héraðs og sameinast loks Lagarfljóti. Samnefndur bær stendur á bakkanum. Munnmæli herma að haug Helga Droplaugarsonar sé að finna í landi Eyvindarár og er hann friðlýstur. Einnig eru friðlýstar tóftir þar sem bærinn hefur áður staðið. Á heitum sumardögum hafa ungmenni notað Eyvindarána til sunds og dýfinga, enda er svæðið kjörið til útivistar af öllu tagi.
Náttúra
Eiðar
Eiðar voru stórbýli til forna, höfðingjasetur og kirkjustaður. Árið 1883 var stofnaður þar bændaskóli en honum var breytt í héraðsskóla (Alþýðuskólinn á Eiðum) árið 1918. Skólinn var lagður niður í lok 20. aldar og síðan hafa verið uppi áform að finna þessum sögufræga stað verðug verkefni. Þar er nú Edduhótel á sumrin en grunnskóli hefur verið starfræktur fram á síðustu ár.
Hitt og þetta
Golfvöllurinn í Fellabæ
Hægt er að bregða sér í golf á vellinum í Fljótsdalshéraði. Þar er huggulegur 9 holu völlur sem rekinn er af golfklúbbi Fljótsdalshéraðs. Völlurinn heitir Ekkjufellsvöllur og par 70 auk þess að státa af einni par-5 braut, sex par-4 braum og tveimur par-3 brautum.
Náttúra
Vestdalsvatn
Skemmtileg gönguleið er yfir Vestdalsheiði frá Héraði yfir í Seyðisfjörð. Vestdalsheiði var áður fyrr fjölfarinn fjallvegur en gengið var upp með Gilsá yfir heiðina og niður Vestdal í Seyðisfjörð. Gengið er frá skilti á Fjarðarheiði (N65°15.577 - W14°13.524) og stefnt að vestari enda Bjólfsins. Vatnið blasir við þegar komið er á móts við Bjólfinn. Þetta er góð gönguleið um ávalar hæðir.
Þegar komið er að Vestdalsvatni er um þrjár leiðir að velja ef fólk vill ekki fara sömu leið til baka. Niður Vestdal í Seyðisfjörð þar er stikuð leið. Niður Gilsárdal eftir greinilegri slóð að Gilsárteigi (austan við Eiða á Fljótsdalshéraði) eða fyrir vestan Bjólfinn niður í Stafdal. Hólkurinn með gestabók og stimpli er þar sem Gilsáin fellur úr vatninu. Vaða þarf ána ef gengið er af Fjarðarheiði.
Kóreksstaðavígi er hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs.
GPS : N65°17.102-W14°17.887
Náttúra
Sandfell Skriðdal
Sandfell er mikilfenglegt, hrygglaga líparítfjall er minnir á tjaldbúð því hlíðar þess eru með jöfnum halla, klettalausar að mestu. Á Sandfelli eru tveir toppar, dökkleitir. Gengið frá skilti við þjóðveg 1 rétt innan við Gilsá. Gengin slóð í fyrstu, inn að girðingu en síðan er gott að ganga upp með girðingunni. Því næst skal halda upp hrygginn norðan í fjallinu og áfram beint af augum upp á topp 1157 m.
Sandfell er hluti af Perlum Fljótsdalshéraðs
GPS : N65°05.637-W14°30.298
Náttúra
Tvísöngur
Tvísöngur er hljóðskúlptúr eftir þýska listamanninn Lukas Kühne. Það samanstendur af fimm sambyggðum hvelfingum af mismunandi stærðum. Hver hvelfing fyrir sig hefur eigin tíðni sem samsvarar einum tóni í fimmundarsöng og virkar sem magnari fyrir þann tón. Tvísöngur virkar þannig sem náttúruleg umgjörð fyrir íslensku tvísöngshefðina.
Náttúra
Selskógur
Selskógur er útivistarsvæði austan Egilsstaða handan Eyvindará. Um skóginn liggja stígar og og að vetri til eru þar gönguskíðabrautir. Í skóginum er líka fótboltavöllur og leiksvæði fyrir börn.
Saga og menning
Gálgaás
Gálgaás var forn aftökustaður Héraðsbúa, rétt austan við kirkjuna á Egilsstöðum. Staðurinn gegnir stóru hlutverki í frægu sakamáli frá liðinni tíð, því þar var Valtýr á Eyjólfsstöðum tekinn af lífi fyrir meintan stuld og morð. Hélt hann þó fram sakleysi sínu allt til skapadægurs. 14 árum síðar fannst hinn rétti morðingi, sem einnig hét Valtýr. Mætti hann einnig örlögum sínum á Gálgaási. Lengi voru bein hans sjáanleg undir ásnum, því óðar blésu þau upp, hversu sem urðað var yfir.
Náttúra
Fardagafoss
Fardagafoss fellur skammt frá Egilsstöðum á leið upp Fjarðarheiði. Er hann efstur fossanna í Miðhúsaánni. Hinir heita Gufufoss og Folaldafoss. Merkt gönguleið liggur að fossinum og er hún greiðfær utan síðasti spölurinn. Bak við fossinn er hellir. Sagnir herma að í honum hafi haldið til tröllskessa. var sú trúa á að frá þeim helli lægju jarðgöng yfir í Gufufoss í Fjarðará, handan heiðarinnar. Önnur sögn hermir að náttröll búi í hellinum er hafi í fórum sínum ketil fullan af gulli.
Söfn
Sláturhúsið
Sýningar
Vesturfaramiðstöð Austurlands
Söfn
Minjasafn Austurlands
Handverk og hönnun
Hús Handanna
Aðrir
- Sunnufelli 4
- 700 Egilsstaðir
- Kaupvangur 17
- 700 Egilsstaðir
- 470-0750
- Miðhús
- 701 Egilsstaðir
- 471-1320
Gistiheimili
Vallanes
Hótel
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstadir
Veitingahús
Salt Café & Bistro
Hótel
Hotel 1001 nott
Sumarhús
Móðir jörð
Hótel
Icelandair hótel Hérað
Veitingahús
Vök Baths
Veitingahús
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstadir
Veitingahús
Askur Pizzeria
Barir og skemmtistaðir
Askur Taproom
Beint frá býli
Fjóshornið
Hótel
Hótel Edda Egilsstaðir
Hótel
Hótel Valaskjálf - 701 Hotels
Veitingahús
Skálinn Diner
Bændagisting
Hótel Eyvindará
Aðrir
- Miðvangur 13
- 700 Egilsstaðir
- 530-7069
- Tjarnarbraut 1
- 700 Egilsstaðir
- 471-2001
- Skógarlönd 3
- 700 Egilsstaðir
- 471-2400
- Hlaðir
- 700 Egilsstaðir
- 471-2255, 864-6055
- Kaupvangur 17
- 700 Egilsstaðir
- 4712450
- Kaupvangur 4
- 700 Egilsstaðir
- 440-1450
- Miðhús
- 701 Egilsstaðir
- 471-1320