Flýtilyklar
Ferðaþjónustan Síreksstöðum
Síreksstaðir eru í Sunnudal, litlum og friðsællum dal inn af Hofsárdal. í Vopnafirði. Þar er frístandandi gistihús og tvö 32 ferm sumarhús í boði fyrir ferðamenn er rúma 4 manns hvort, hlýleg og vel búin öllum þægindum. Verönd með gasgrilli eru við hvort hús og heitur pottur við annað húsið. Í gistihúsinu eru 7 tveggja manna herbergi og eitt svefnherbergi með hjónarúmi og koju. Setustofa með sjónvarpi. Uppbúin rúm eða svefpokapláss. WC og sturtur til sameiginlegra afnota í miðrými hússins. Handlaugar eru í hverju herbergi. Morgunverður borin fram í veitingarstaðnum sem er áfastur við gistihúsið. Hentugt fyrir alla þá er áhuga hafa fyrir að komast út og upplifa náttúruna og kyrrðina.
Á Síreksstöðum er einnig rekinn veitingastaðurinn "Hjá okkur" sem býður upp á fjölbreyttan og góðan mat. Leitast er við að vera með sem mest af hráefni frá búinu og nágrenni. Veitingarstaðurinn er opin frá 18 til 21.
Á Síreksstöðum er stundaður hefðbundinn búskapur og njóta gestir stúkusæta sem áhorfendur að bússtörfum. Hér eru griðavé til að upplifa kyrrðina og rólegheitin, hlusta á fuglasönginn og skoða plöntulífið. Staðurinn er fjölskylduvænn og dvöl í sveitasælunni er vel þess virði að upplifa.
Afþreying:
Leiktæki, rólur, rennibraut, sandkassi.
Í boði verða dagsferðir á jeppa um nágrennið, nágrannasveitarfélög og hálendið.
Minjasafnið Bustarfelli og "Hjáleigan" kaffihús 8km. Gönguleiðir í nágrenninu. Veiði í ám og vötnum. Á slóðum Vopnfirðingasögu með leiðsögn.
Nánari upplýsingar á www.sireksstadir.is
Síreksstaðir





Ferðaþjónustan Síreksstöðum - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands