Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Danssýning til styrktar Úkraínu

13. maí kl. 18:00

Upplýsingar um verð

Tekið er á móti frjálsum framlögum

Danssýning og tónleikar til styrktar Úkraínu.
Herðubreið, Seyðisfirði 13. maí kl. 18
Öll hjartanlega velkomin!

Danstónleikar til stuðnings Úkraínu.
Þetta eru fjölskyldutónleikar á vegum Alona Perepelytsia með þátttöku fjölskyldu hennar og annarra flóttamanna frá Úkraínu
Aðgangur verður ókeypis en söfnunarbox verður á staðnum. . Fjármagnið sem safnast á tónleikunum mun renna til styrktar Lækna Smartmed Medical Center í Kyiv og munaðarleysingjahæli í Cherkasy svæðinu. Dyrnar opna 30 mínútum fyrir sýningu.

Ég heiti Alona og er frá Úkraínu. Ég hef búið á Austurlandi í tæp 8 ár. Margir heimamenn þekkja mig sem dansara og danskennara. Ef við þekkjumst ekki enn þá verða þessir tónleikar mjög gott tækifæri til þess. Ég bý með íslenska eiginmanni mínum og dætrum okkar tveimur, en frá byrjun mars 2022 varð húsið okkar og foreldrahús mannsins míns tímabundið heimili og athvarf fyrir ættingja mína sem neyddust til að yfirgefa Úkraínu vegna stríðsins. Vinkona mín Iryna og Vadim Boiko sem eru líka frá Úkraínu eru í sömu stöðu, þau hýsa 6 flóttamenn.

Úkraína er land sem er mjög ríkt af skapandi fólki. Við ákváðum að taka höndum saman og skipuleggja þessa tónleika til að þakka ykkur öllum fyrir hjálpina og einlægar móttökur á fólki frá Úkraínu á austurlandi, sem og að safna fé til að hjálpa þeim sem ekki gátu yfirgefið Úkraínu og eru nú ekki bara í hættu en einnig án flestra þeirra úrræða sem nauðsynleg eru til lífs.

Þetta eru fjölskyldutónleikar og dyr okkar eru öllum opnar. Sjáumst!

Hægt er að styrkja söfnunina með því að leggja inn á:
Kt. 3103913369
Banki: 0569-26-003103

GPS punktar

N65° 15' 36.128" W14° 0' 23.956"

Staðsetning

Herðubreið, Austurvegur

Fleiri viðburðir