Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Gunnar Freyr Gunnarsson: Til móts við nýtt upphaf

13. júní - 9. júlí

Gunnar Freyr Gunnarsson: Til móts við nýtt upphaf
13. Júní – 9 júlí í Gallerí klaustri, Skriðuklaustri
Verð: Innifalið í safnaaðgangi sem er 1.100 kr.

Sýningin fjallar um þróun, um breytingu og flæði sem marka umskipti í hugmyndafræði nútímans – sýnir heim sem fer frá því að vera heltekinn af heimsfaraldri en stefnir til nýrra tímamóta. Myndirnar endurspegla sköpun, þróun og nýtt upphaf. Þær eru teknar um allt land en nokkrar sýna nærtæk form og landslag af Austurlandi.

Gunnar Freyr Gunnarsson er fæddur og uppalinn í Danmörku en flutti til Íslands árið 2015 með þann draum að gera náttúruljósmyndun að atvinnu. Hann stundaði nám við Ljósmyndaskólann í Reykjavík árið 2016 og hefur síðan lagt rækt við ástríðu sína fyrir íslensku landslagi. Hann hefur starfað sem atvinnuljósmyndari síðustu fimm ár og hefur unun af að upplifa Ísland gegnum myndavélalinsuna og deila þeirri upplifun með öðrum gegnum magnaðar ljósmyndir af landi og þjóð. Myndir Gunnars hafa birst víða um heim og ein af þeim viðurkenningum sem hann hefur hlotið er að vera norrænn sendiherra Canon.

Verk Gunnars er hægt að kynna sér frekar á www.icelandicexplorer.com og á Instagram ( þar sem hann er með fleiri en 400þúsund fylgendur.

Sýningin er opin á opnunartíma safnsins 10 -18 alla daga.

GPS punktar

N65° 2' 27.016" W14° 57' 10.313"

Staðsetning

Skriðuklaustur

Sími

Fleiri viðburðir