Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Láttu þér líða vel

17. júní kl. 20:00

Sigga og Grétar: Láttu þér líða vel
17. Júní kl. 20:00 í Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði
Húsið opnar 19:30
Verð: 4.990 kr. – forsala á Tix.is

Sigga og Grétar úr Stjórninni fara um landsbyggðina í sumar með tónleikana „Láttu þér líða vel?. Efnisval er fjölbreytt og hefur að geyma skemmtilega blöndu af vinsælustu Stjórnarlögunum og lögum af sólóplötum þeirra. Sigga og Grétar eru landsmönnum vel kunnug. Þau hafa unnið og sungið saman í rúm þrjátíu ár og tekið þátt í Eurovision í tvígang fyrir Íslands hönd. Fyrst árið 1990 í Zagreb með lagið „Eitt lag enn” og aftur 1992 í Malmö með lagið „Nei eða já”. Þá tók Sigga í þriðja sinn þátt í Eurovision 1994 í Dublin með lagið „Nætur”.

Stjórnin hefur gefið út fjölda hljómplatna, sem margar hverjar slógu í gegn. Nú er nýr sumarsmellur að detta inn, „ Hleypum gleðinni inn”. Lagið er eftir Grétar Örvarsson og höfundur texta er Bragi Valdimar Skúlason.

Tónleikarnir eru haldnir í Tónlistarmiðstöð Austurlands og húsið opnar klukkan 19:30. Tónleikar hefjast klukkan 20:00

Forsala miða er á Tix.is en einnig verður miðasala við innganginn á meðan húsrúm leyfir. Miðaverð er 4.990kr.

Hæ, hó, jibbí, jei og, jibbí, jei ....

GPS punktar

N65° 4' 42.912" W14° 2' 0.561"

Staðsetning

Tónlistarmiðstöð Austurlands

Fleiri viðburðir